10.10.2013 | 11:50
Styður þingflokkur xD fjárlagafrumvarpið?
Fjárlagafrumvarp er ekki hrist fram úr erminni. Að gerð þess koma fjölmargir aðilar undir verkstjórn fjármálaráðherra og ráðuneytis hans. Ráðuneytin og stofnanir ríkisins leggja fram áætlanir og setja fram hugmyndir sínar. Ráðherra flytur frumvarpið fyrir hönd ríkisstjórnarinnar allrar og með stuðningi þingflokka stjórnarflokkanna. Skyldi maður ætla. Fjármálaráðherra hefur lýst því yfir í þingræðu að góður stuðningur sé við frumvarpið. Nú er góður stuðningur væntanlega líka teygjanlegt hugtak. Þingmaður nokkur að nafni Brynjar Níelsson hefur lýst því yfir að setja þurfi þrjá til 5 milljarða króna á ári í heilbrigðisþjónustuna. Ef fleiri í þingflokknum eru þessarar skoðunar duga ekki lengur velþekkt bókhaldstrix til að ná jöfnuði. Meira þarf til. Það þarf að fara ofan í vasa ofurríka fólksins og milljarða fyrirtækjanna. Skyldi það gerast næst? Fyrr frýs í helvíti ;).
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar