10.10.2013 | 13:58
Koma stjórnvöld í veg fyrir mútur?
1997 skrifuðu 40 ríki OECD undir samkomulag um að berjast gegn mútum. Samkvæmt nýlegri skýrslu Transparency International eru einungis átta ríki sem staðið hafa við skuldbindingar sínar. Ísland er ekki í þeim hópi. Í skýrslunni kemur fram að íslensk yfirvöld eru illa undir það búin að takast á við það ef erlend stórfyrirtæki múta embættismönnum. Erlend stórfyrirtæki eru mjög áberandi hér á landi og komi til olíuvinnslu verða þau enn meira áberandi. Engar rannsóknir hafa verið á því gerðar hvort mútugreiðslur hafi átt sér stað. Reyndar eru rannsóknir lögmanna, félagsfræðinga og afbrotafræðinga á efnahagsafbrotum af mjög skornum skammti hér á landi. Refsirammi fyrir mútur er þröngur hér á landi. Fyrir starfsmenn í opinbera geiranum er engin uppljóstraravernd en frumvarp mun á leiðinni. Endurskoðendur og skattasérfræðinga skortir þekkingu á því að greina og finna múturgreiðslur. Hér er greinilega mikið verk óunnið.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar