Lítil atvinnuvegafjárfesting undir hægri stjórn.

Á tíma vinstri stjórnar kyrjuðu sjálfstæðismenn sama sönginn. Ríkisstjórnin er andsnúin atvinnuvegunum. Hún leggur atvinnulífið í rúst með ofursköttum. Hún kemur í veg fyrir fjárfestingar með stöðugum skattalagabreytingum og pólitískri óvissu. Hugmyndasnauðir en af mikilli eljusemi endurtóku talsmenn núverandi stjórnarflokka sama sönginn. En nú er komin ný stjórn og pólitískri óvissu þá -hugsanlega-eytt. Skattar lækkaðir og gjöld afnumin til að efla atvinnulífið(sic). En ekkert gerist og hver er þá skýringin? Hið brennandi hús ESB? Hugsanlegt greiðslufall USA? Raunverulegar skýringar eru auðvitað margar og þær eiga jafnt við hvort sem um er að ræða tíma vinstri stjórnar eða hægri stjórnar. Ein eru miklar skuldir íslenskra fyrirtækja og mikil skuldsetning í alþjóðlegum samanburði. Skuldir fyrirtækja eru 154% af vergri landsframleiðslu.  Önnur er háir vextir íslenskra banka (krónuskattur!). Þriðja er að fjármálastofnanir veigra sér við að lána mjög skuldsettum fyrirtækum fé vegna of mikillar áhættu. Matsfyrirtæki myndu meta íslensk fyrirtæki í sérstökum áhættuflokki. Núna í ágúst voru rúm 6200 fyrirtæki á vanskilaskrá eða 16% allra fyrirtækja. Það er hins vegar jákvætt að nýskráningum fjölgar. Bankar virðast fara þá leið að lengja í lánum frekar en að endurskipuleggja eða afskrifa. Menn ýta vandanum á undansér. En hversu lengi?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband