10.10.2013 | 17:38
Verkalýðssamtök í Noregi gegn hægri stjórn.
Lo eru stærstu samtök launafólks í Noregi. Félagar eru 900000 og er jafnt hlutfall kynjanna. Gerd Kristiansen formanni LO, líst ekki vel á stefnu nýju stjórnarinnar. Hún segir að nú eigi að snúa norsku samfélagi í átt til hægri. Á vinnumarkaði er stefnt á aukinn sveigjanleika hvað vinnutíma varðar og auka möguleika á tímabundnum ráðningum. Þetta færir vald frá launafólki til atvinnurekenda. Hún er ánægð með að styrkja á vinnueftirlit. Mikill fjöldi erlends vinnuafls er á vinnumarkaðinum og hætta á undirboðum og svartri atvinnustarfsemi. Hún varar við einkavæðingu í heilbrigðisþjónustu og menntun. Einkafyrirtæki á þessum sviðum reyna að ná hagnaði með auknu vinnuálagi, lægri launum og minni gæðum. Hægri flokkarnir vilja lækka eignaskatt og því er Gerd mótfallin. Þetta mun gagnast þeim sem ríkastir eru og það er í andstöðu við góð norsk gildi. Hún er mótfallin ætluðum niðurskurði í landbúnaðarmálum og sjávarútvegi. Hún sér fram á mikla samþjöppun í sjávarútvegi. Hægri flokkarnir stefni á aukna miðstýringu og samþjöppun og það er óæskileg þróun.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar