11.10.2013 | 16:51
Fátækt þjóðanna.
1.2 milljarður manna lifir í sárri fátækt. Til framfærslu hefur hver manneskja minna en 1.25 dollara á dag. Af þessum fjölda eru börn 400 milljónir. Fátæktarmörk i USA eru 60 dalir fyrir fjórar manneskjur á dag. Það að fá ekki nóg að borða er hlutskipti þeirra sem lifa í sárri fátækt. Og þetta er 21. öldin. Þeim sem lifa í sárri fátækt hefur fækkað umtalsvert undanfarna þrjá áratugi. Þjóðarauður Kína og Indlands hefur vaxið hratt og það skýrir fækkunina að mestu leyti. Það er einkum í Kína sem baráttan gegn fátækt hefur skilað árangri. Þeim sem lifa í sárri fátækt hefur hins vegar fjölgað í mörgum ríkjum Afríku. Stór hluti þeirra hefur ekki aðgang að hreinu vatni eða hreinlætisaðstöðu. Þá síður aðgang að rafmagni. Flestir lifa í sveit eða strjálbýli. Fátæktin er ekki örlög eða vilji guðs. Hvorki í Afríku né hér á landi. Henni er hægt að útrýma með pólitísku valdi ef vilji er fyrir hendi.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar