12.10.2013 | 09:43
Noregur; vill hægri stjórnin takmarka frelsi blaðamanna?
Hægri flokkarnir vilja takmarka aðgengi blaðamanna að upplýsingum um tekjur og eignir einstaklinga. Flokkarnir vilja að allri sem fengnar eru upplýsingar um verði tilkynnt hver fær upplýsingarnar og til hvers þær verða notaðar. Það er verið að hækka þröskuldinn; það verður ekki jafn auðvelt að segja fyrirferðarmiklar fréttir af tekjum og eignum (eða litlum tekjum og miklum eignum) þekktra persóna í þjóðlífinu. Samtökum norskra blaðamanna líst afar illa á þessar fyrirætlanir. Blaðamenn hafa samfélagslega ábyrgð. Það er ekki á valdi einstakra þingmanna að setja forskriftir um hvað er við hæfi og hvað ekki. Hægri menn bera fyrir sig persónuvernd og friðhelgi einkalífs. Það er hins vegar vandséð hvernig skipting þjóðartekna og þjóðarauðs getur verið einkamál. Auðæfi verða til með samfélagslegri vinnu margra en ekki töfrabrögðum " snillinga" í markaðsviðskiptum. Velferðarkerfið grundvallast á lögmæti. Þeir sem borga í kerfið gera það á lögmætum og löglegum grundvelli. það sama gildir um þá sem fá bætur úr kerfinu. Það sama á að gilda um eignamyndun og tekjumyndun.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar