13.10.2013 | 18:35
Kristilegir demókratar og jafnaðarmenn mynda stjórn í Þýskalandi.
Nú virðist allt benda til þess að ný stjórn sé að verða til í Þýskalandi. Núna þremur vikum eftir kosningar til sambandsþingsins bendir allt til þess að stjórnarmyndun stóru flokkanna, CDU, CSU og SPD sé að hefjast. Jafnaðarmenn gerðu lög um lágmarkslaun að forsendu stjórnarmyndunar. 8.50 evrur á tímann. Nú virðist samkomulag geta náðst um þetta atriði. Jafnaðarmenn draga til baka kröfu sína um -euro bond-skuldabréf sem væru innleysanleg í öllum bönkum evrusvæðisins. Í skattamálum virðast flokkarnir hafa nálgast hvort annan. Viðræður fara fram milli forystumanna flokkanna en sérfræðingar hinna ýmsu málaflokka bera einnig saman bækur sínar. Fylgi við samstarf við hægri flokkana virðist fara vaxandi innan jafnaðarmannaflokksins. Græningjar virðast ekki geta verið með. Þeir eru í sárum eftir kosningaúrslitin og forysta flokksins hefur sagt af sér. Enn er hluti jafnaðarmanna vantrúaður á stjórnarsamstarfið. En ráðherraskipan skiptir miklu. Ef jafnaðarmenn fengju fjármálaráðuneytið yrðu margir ánægðir. (Der Spiegel)
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar