Hin hlið skuldakreppu Evrópu.

Ríkissjóðir margra landa hafa tekið lán og skulda mikið. Það er ein hlið málsins. Hin hliðin er að fyrirtæki og heimili skulda einnig mikið. Skuldir heimila eru afar háar á Írlandi og á Spáni. Fyrirtæki eru mjög skuldug í Portúgal og á Spáni. Í löndunum þremur voru skuldirnar mun meira en  tvöföld landsframleiðsla fyrir kreppuna. Þetta var miklu meira en í USA (175%) og Bretlandi (205%). Skuldaniðurfærsla hefur gengið tiltölulega hratt í USA en mun hægar í Evrópu. Ástæður eru einkum þrjár ; í Suður-Evrópu hefur verið fylgt niðurskurðarstefnu sem hefur dýpkað kreppuna og minnkað svigrúm til að lækka skuldir. Í öðru lagi er staða bankanna veik sem hefur takmarkað möguleika þeirra. Í þriðja lagi er evrópsk gjaldþrotalöggjöf skuldurum mun erfiðari en er í USA. Í USA er víða hægt að skila lyklinum og fasteigninni og þar með er skuldarinn laus allra mála. Í Evrópu er þetta ekki möguleiki. Á Ítalíu er gjaldþrotaferlið sjálft langt og kostnaðarsamt en það tekur sjö ár. Húsnæðisskuldir eru sérstaklega háar á Írlandi og í Hollandi. Heimsálfa með uppvakninga-fyrirtækjum og gjaldþrota heimilum mun aldrei blómstra.....

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband