Auðlegðarskattur; réttlátur skattur á krepputímum.

Í Tíund , tímariti Rikisskattstjóra er athyglisverð greinum tekjudreifingu og skattbyrði. Þar er meðal annars fjallað um auðlegðarskattinn. Skatturinnvar lagður á 1200 einstaklinga og 2900 hjón. Um er að ræða 2% fjölskyldna sem eiga 19% allra eigna. 98% fjölskyldna hljóta því að eiga 81% eigna. Eingir eru helst verðbréf, hlutabréf, skuldabréf og innistæður í innlendum og erlendum bönkum. Allt eru þetta eignir sem afar auðvelt er að breyta í peninga og greiða þannig skattinn ef reglulegar tekjur skyldu ekki nægja. Eldri en fimmtugir greiða 84% af álgningunni. Auðlegðarskattur er hvorki meira né minna en 1.5% (!) af skuldlausri eign og er miðað við 75 milljónir hjá einstaklingi 100 milljónir hjá hjónum. Tæp 60% fjölskyldna í þessu hópi hafa háar tekjur og enginn vandi að greiða skattinn með aflafé. Skv Tíund voru 15 fjölskyldu þar sem aflafé nægði ekki til að greiða skattinn. Þeim er að sjálfsögðu mikil vorkun að þurfa að selja hlutabréf innlend eða erlend, til að greiða skattinn. Þetta er ekki fólkið sem við þurfum að finna til með á Íslandi í dag.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband