25.10.2013 | 11:12
Fátækt í Þýskalandi.
Árið 2011 voru 13 milljónir þýskra ríkisborgara fátækir eða líklegir til að verða fátækir. Þetta er mun verra ástand en í Frakklandi svo dæmi sé tekið. Fátækum fer fjölgandi. Þeir voru 12.2% árið 2005, 15.8% 2010 og 16.1% árið 2011. Um er að ræða afstæða fátækt. Sá sem hefur minna en 60% af meðaltekjum(miðgidi) telst fátækur. 2011 voru þetta 2058 evrur á mánuði fyrir hjón með tvö börn undir fjórtán ára aldri. Félagsleg aðstoð er reiknuð með en skattar og gjöld dregin frá. Afstæð fátækt er afstæð! Einstaklingur í Noregi með 1200 evrur á mánuði væri á mörkum þess að vera fátækur en hann gæti lifað góðu lífi fyrir sömu upphæð í Bulgaríu. Í Grikklandi eru 23% fátækir eða í hættu að verða fátækir. Konur eru í meiri hættu en karlar í Þ'yskalandi. Einstæðar mæður og feður eru í mikilli hættu; 39% eru fátæk eða gætu orðið fátæk. Hlutfallið hjá atvinnulausum og fjölskyldum þeirra er 70%.(Spiegel)
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar