25.10.2013 | 13:50
Þjóðirnar tvær og Vilhjálmur Birgisson.
Vilhjálmur er eins og kunnugt er formaður í verkalýðsfélagi Akraness. Hann var eindreginn stuðningsmaður Framsóknar í kosningabaráttunni og er enn stuðningsmaður flokksins(held ég) þrátt fyrir að margir yfirgefi nú flokkinn og gagnrýni hann. Sem stendur virðist flokkurinn standa einn að stjórnarsáttmálanum. Vilhjálmur ber nú saman í blaðagrein niðurfærslu lána hjá fyrirtækjum annarsvegar og heimilum hins vegar. Eðlilega finnst honum halla mjög á heimilin. Frá hruni hafa skuldir fyrirtæja lækkað um 3000 milljarða segir Vilhjálmur. En lítið sem ekkert hefur verið gert fyrir heimilin segir verðalýðsforinginn. Nú vitum við ekki hvort Vilhjálmur tekur þau orð forsætisráðherra hátíðlega að heimsöguleg tímamót séu framundan í skuldaleiðréttingarmálefnum heimillanna. Þessi orð féllu fyrir fríð góða í Flórída eins og kunnugt er. Samkvæmt skýrslum AGS hafa skuldir heimila lækkað um 14% frá hruni. Skuldir fyrirtækja hafi lækkað óvenju mikið eða um 45%. Einkum kemur til afskriftir lána og endurreikningur á ólöglegum gengistryggðum lánum. Heimili eru mörg og mismunandi. Sum eru eignamikil og hafa háar tekjur og miklar skuldir en önnur eignalítil, með lágar tekjur, miðlungsskuldir en mikla greiðsluerfiðleika. Heimilin eru sem sagt ólík og mismunandi. Almenn niðurfærsla skulda um ákv. prósenttölu kemur þess vegna tekjuháum , eignamiklum og skuldugum heimilum til góða. Umbjóðendur Vilhjálms eru hins vegar ekki í þessum hópi. Útfærslan skiptir því öllu máli og hún er óþekkt á þessari stundu. Í huga Vilhjálms eru því tvær þjóðir í landinu; þeir sem fá niðurfellingu skulda eða sérhagsmunaelítan og þeir sem fá lítið sem ekkert eða alþýðan. Margir hafa notað samlíkingu um tvær þjóðir. Lenín ritaði eitt sinn að í Bretlandi byggju tvær þjóðir; öreigalýðurinn sem seldi vinnuafl sitt og burgeisarnir sem ættu og stjórnuðu atvinnutækjunum.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar