25.10.2013 | 17:39
Hver er Russel Brand?
Hann er enskur leikari, uppistandari, útvarpsmaður og rithöfundur. Hann er 38 ára gamall og vakti nýlega mikla athygli fyrir eldmessu sem hann hélt í þætti Paxman á BBC. Sem uppistandari byggir hann á eigin lífsreynslu drykkjusýki, fíkniefnnotkun og mjög líflegu einkalífi. Foreldrar hans skildu og hann var alinn upp af móður sinni. Þegar hann var sjö ára var hann misnotaður kynferðislega af kennara. 16 ára gamall yfirgaf hann heimili móður sinnar og sambýlismanns hennar. Þá notaði hann hass, amfetamín, lsd og e-töflur. Á þessum árum hafði hann nokkurt samband við föður sinn. Saman fóru þeir til Austurlanda fjær þar sem Russel kynntist fyrst vændiskonum. Russel er grænmetisæta. Hann klæðist á áberandi bóhemiskan hátt. Hann hefur greinst með adhd og geðhvörf. Vegna fíkniefnaneyslu hefur hann margoft verið tekinn fastur af lögreglu. Russel er óvenjulega hæfileikaríkur listamaður og hefur hlotið margvíslega viðkenningu fyrir list sína á mörgum ólíkum sviðum. Þættir hans í sjónvarpi og útvarpi hafa vakið mikla athygli. Hann hefur einnig verið(umdeildur)kynnir á tólistarhátíðum og verðlaunaafhendingum. Hann hefur ritað bækur um heimspeki, sjálfsævisögu og þætti um breskan fótbolta í The Guardian.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar