Kynferðisbrot og refsingar.

Það er almenn skoðun að kynferðisbrot séu alvarlegir glæpir og að refsingar séu of vægar. Á árunum 1977 til 1996 var refsing fyrir nauðgun eitt til tvö ár. Beiting ofbeldis réði refsihæð. Á tímbilinu 1997 til 2002 virðast refsingar ekki þyngjast. Refsingar fyrir nauðgun og alvarleg kynferðisafbrot gegn börnum eru fjögur til sex ár. Ástæður refsiákvörðunar er að mestu bundin í lög. Nefna má aldur þolenda, þjáningar, líkamsáverkar, hætta sem fylgdi verknaði, brotaferill bortamanns, hversu einbeittur brotavilji var, tilgangur brotsins og hegðun eftir brot.  Nokkrar ástæður eru ekki festar í lög. Nefna má tjón sem verður af völdum verknaðar s.s. starfsmissi, réttindamissi eða ástvinamissi. Hrottafengið gróft ofbeldi kallar á hærri refsingu sem og ef þolendur eru mjög ungir. Ef um trúnaðarsamband hefur verið að ræða milli brotamanns og þolenda þyngir það refsingu. Ungur aldur gerenda hefur vegið til mildunar refsingar. Kynferðisofbeldi gegn börnum vekur ákaflega sterk tilfinningaviðbrögð hjá fólki sem er eðlilegt. Nú eru birtar myndir á netinu af mönnum sem hlotið hafa dóm (nidingar.wordpress.com). Þar eru einnig tenglar í dómana. Nú hefur Barnastofa lagalega heimild til að fá  upplýsingar úr sakaskrá einstaklinga. Eftirlit með dæmdum afbrotamönnum sem álitnir eru hættulegir hlýtur eðli málsins samkvæmt að vera á hendi opinberra aðila. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband