Viðhorf til glæpa og refsingar.

Afbrot og glæpir eru hluti allra samfélaga. Regla sem ekki er einhvern tíma brotin er ekki til. Að brjóta reglu er ekki afbrot og að brjóta lög leiðir ekki alltaf til rrefsingar. Í fjölmiðlum eru frásagnir af glæpum fyrirferðamiklar. Fjölmiðill er söluvara og hann segir frá því sem talið er að auki sölu. Ofbeldis-fíkniefna-og kynferðisbrot eru mjög stór hluti frásagna fjölmiðla. Aðrir brotaflokkar fá mun minni eða enga umfjöllun.Ótti við glæpi er mikill og útbreiddur. Hann er meiri hjá koum en körlum og hann er meiri í þéttbýli en í dreifbýli. Viðhorf Íslendinga til refsinga hafa verið rannsökuð í rúman áratug. Það er greinilegt að meirihluti íslendinga telur glæpi vera mikið vandamál. Nú er raunveruleg þróun glæpa eins og hún er skráð hjá lögreglu og í réttarkerfi eitt og almenningsálitið annað. Yfir 80% landsmanna telur sig örugga eina á gangi að kvöld-eða næturlagi í sínu byggðarlagi. Öryggistilfinning er nokkuð háð aldri. Á þessu ári telja flestir að kynferðisbrot séu mesta vandamálið en alveg fram að 2013 hafa fíkniefnabrot verið talin mesta vandamálið. Í janúar á þessu ári voru daglegar fréttir um barnaníð í fjölmiðlum. Mikil umæða varð eftir kastljósþátt um barnaníð. 2012 voru aðeins 13% sem töldu kynferðisbrot alvarlegasta vandamálið. Viðhorfin eru því ekki í samræmi við veruleikann heldur þann veruleika sem fjölmiðlarnir búa til. Afstaða til afbrota er mismunandi eftir kynjum. Konur telja kynferðisafbrot vera alvarlegri en karlar. Karlar telja hins vegar efnahagsbrot vera alvarlegri en konur. Flestir telja að afbrot tengist fikniefna-og áfengisneyslu fremur en erfiðum heimilisaðstæðum í æsku. Það er greinilegt að meirihluti fólks telur nauðgunardóma vera of væga. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband