Grænland; örar breytingar og hætta á spillingu.

Stórfelldar breytingar eru framundan í grænlensku efnahagslífi. Erlend stórfyrirtæki munu fá leyfi til námuvinnslu og hugsanlega að flytja til landsins fjölda erlendra starfsmanna. Reynsla annarra landa sýnir að við slíkar aðstæður er mikil hætta á spillingu. Ekki virðast mörg dæmi um stórfellda spillingu á Grænlandi. Hins vegar eru þær stofnanir, lagarammi og ferli sem taka ætti á hugsanlegri spillingu mjög veikburða. Grænlendingar verða að sjá til þess að hluti arðsins sem mun verða af stórfelldum framkvæmdum erlendra aðilia renni til allra Grænlendinga eða allrar þjóðarinnar. Grænlensk stjórnvöld ættu að innleiða sáttmála SÞ um baráttu gegn spillingu. Ljóst er að þingmenn og embættismenn mega ekki hafa neina persónulega hagsmuni tengda þeim framkvæmdum sem framundan eru. Tryggja verður rétt og vernd uppljóstrara en réttur þeirra er lítið tryggður nú. Það er nauðsynlegt að koma upp eftirlitsstofnunum sem fylgjast bæði með opinberum aðilum og einkaaðilum. Fjárhagslegt sjálfstæði slíkrar stofnunar verður að tryggja. Verkalýðsfélög í Grænlandi og Danmörku eru eðlilega mótfallin því að erlent vinnuafl,t.d. kínverskt, sé flutt í stórum stíl inní landi og vinni á launakjörum og við aðbúnað sem sé ekki ekki sambærilegur lágmarkskjörum Grænlendinga.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband