27.10.2013 | 17:33
Geta öreigar allra landa ekki sameinast?
Branco Milanovic heitir hagfræðingur hjá Alþjóðabankanum. Hann hefur rannsakað tekjuskiptingu innan ríkja og á heimsvísu. 2007 ritaði hann bók og hélt því fram að hægt væri að skilgreina 80% jarðarbúa sem fátæka. Og þróunin væri í átt til meiri ójafnaðar. 2013 hafa 8% jarðarbúa 50% allra tekna. 92% jarðarbúa hafa einnig 50% allra tekna. Í USA hafa 22% íbúa 50% allra tekna. Tekjur 1% jarðarbúa sem mestar tekjur hafa hafa aukist um 60% síðan 1988. Helmingur þessa 1% eru bandarískir ríkisborgarar. Fjölmennir hópar hafa aukið tekjur sínar verulega, t.d. bændur í Kína og Indlandi, sem flust hafa til stórborganna. Raunlaun fjölmennra hópa lanafólks í þróuðum hagkerfum hafa staðið í stað á síðustu 20 árum. Á heimsvísu er tekjudreifingin ójafnari árið 2000 en hún var 1870. Milanovic skoðar annars vegar hversu ójöfn tekjudreifingin er innan hvers ríkis. T.d. tekjuháir og tekjulágir Danir. Hins vegar skoðar hann hverjar eru meðaltekjur í hverju ríki og hver er munur á þeim. Hann heldur því fram að það sé síðarnefndi munurinn sem skýri tekjudreifinguna á heimsmælikvarða. Það er munur á milli ríkja sem skiptir mestu máli. Þegar Karl Marx ritaði Auðmagnið bjuggu fátæklingar í Englandi og Indlandi nokkurn veginn við sömu kjör. En það hefur breyst. Á þessum grunni heldur Milanovic því fram að alþjóðleg samstaða verkalýðshreyfingar skorti efnislegar forsendur. (Michael Roberts Blog).
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar