28.10.2013 | 08:22
Samherji siglir í miklum meðbyr.
Hagnaður síðasta árs nam 16 milljörðum króna. Tekjuskattur og veiðigjald voru samtals 3.3 milljarðar króna. Veiðigjaldið er 1.4 milljarðar. Fjórða árið í röð skila allar afkomueiningar samstæðunnar hagnaði. Í fyrra var hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði 21.6 milljarður. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 44.3%. Bókfærður söluhagnaður var 1.6 milljarður króna. Meðal annars voru seldar eignir sem tengdust útgerð við strendur Afríku. Fjárfestingar á árinu námi 8.6 milljörðum króna. Hjá Samherja og dótturfélögum starfa nú 700 manns á Íslandi. 55% af veltu samstæðunnar kemur frá dótturfélögum erlendis. Sjávarútvegur er alþjóðleg grein eins og öll starfsemi Samherja sýnir. Veltufjárhlutfall er 1.65. Ekki eru reiknaðar fleiri tölur á heimasiðu Samherja hf. Fróðlegt væri að sjá t.d. hver er arðsemi eiginfjár, arðsemi heildareigna, hagnaðarhlutfall og arðgreiðsluhlutfall. Þessar tölur gefa tilefni til hugleiðinga; ef við hefðum 50 öflugustu útgerðarfyrirtækin hvað væri samanlagður hagnaður( fyrir afskriftir og fjármagnsliði) mikill ? hvað væri hann stórt hlutfall af öllum samanlögðum hagnaði greinarinnar? Hallalaus fjárlög eru mikilvæg en þá eru tvær spurningar: til hverra á að sækja skatttekjur og gjöld? hvaða útgjaldaflokka á að skera niður eða taka gjald fyrir?
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar