28.10.2013 | 20:34
Noregur; Hoyre vill meiri aðlögun að ESB.
Tæp 20% norskra kjósenda eru hlynntir aðild að ESB en Vidar Helgesen nýr ráðherra Evrópumála gefur til kynna að framundan sé meiri aðlögun að ESB. Hann er reyndar þeirrar skoðunar að umsóknaraðild verði að veruleika ekki í náinni framtíð. Ráðherrann hefur áhuga á aukinni umræðu um ESB og EES. Á margan hátt er Noregur háður því sem gerist í Evrópu en hefur engin áhrif á löggjafarvaldið en í gegnum dýnamiskan EES samning verður Noregur að aðlaga sig. Stjórn Verkamannaflokksins og SV notfærði sér undanþáguheimildir varðandi 3ju reglugerð ESB um póstþjónustu. En nú verða undanþáguheimildir ekki notaðar. Venstre hefur verið á móti reglugerðum. Hægri eru hlyntir aukinni samkeppni og markaðsvæðingu í opinberum rekstri. Helgesen sér fram á að reglugerð um bankainnistæður gæti orðið deilumál. Hann er einnig þeirrar skoðunar að innflytjendamálið séu sameiginlegt mál allra Evrópuríkja.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar