28.10.2013 | 22:52
Hvað mega konur í Sádi-Arabíu?
Konur mega ekki taka bílpróf og aka bíl. Það er vel þekkt um allan heim. Þessi staðreynd er tákn fyrir lagakerfi sem er afar andsnúið konum og rétti þeirra. Réttindi kvenna í landinu eru talin þau minnstu sem þekkjast samkvæmt árlegri skýrslu World Economic Forum. Sérhver kona hefur karlmann sem gætir hennar eða leiðbeinir henni. Það getur verið faðir hennar, bróðir eða eiginmaður. Þessi maður ræður yfir henni á sama hátt og foreldri ræður yfir barni í okkar samfélagi. Hún þarf leyfi til að ferðast, vinna eða leita til læknis. Hún er háð honum um peninga, húsnæði.... Konur hafa annars flokks mannréttindi. Þeim er bannað að hafa samskipti við menn sem tilheyra ekki fjölskyldunni og þær hafa nánast engin pólitísk réttindi. Í uppeldi ungra stúlkan er þeim kennt að óttast heiminn fyrir utan eigið heimili. Þær eiga að nálgast hann með skömm. Barátta kvenna fyrir því að mega aka bíl hófst um mitt ár 2011. Sú barátta er einnig táknræn. Hún beinist gegn flóknu lagalegu og félagslegu valdakerfi.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar