ASI gagnrýnir ríkisstjórnina í nýrri hagspá.

Það er lítill hagvöxtur framundan og hann dugar ekki til að vinna bug á atvinnuleysi og ná fyrri kaupmætti. Fyrir kosningar endurtóku núverandi stjórnarflokkar í sífellu nauðsyn þess að auka fjárfestingar. Það væri lykilinn að hagvexti. Þegar þeir hafa tekið við stjórn landsins er ekki gripið til neinna aðgerða til að auka fjárfestingar. Fjárfestingarhlutfall er mjög lágt í sögulegu samhengi. Þær fjárfestingar sem eru í gangi eru verk fráfarandi ríkisstjórnar. Núverandi ríkisstjórn afsalaði sér milljarða tekjum í skatttekjum og veiðigjöldum og féll frá fjárfestingaráætlun fyrri ríkisstjórnar. Alls kostar óljóst er hvað verður um tvö stór mál. Annars vegar leiðréttingu verðtryggðra húsnæðislána og hins vegar afnám gjaleyrishafta. Ríkisstjórnin á eftir að sýna framá að hún hafi trúverðuga efnahagsstefnu. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband