Greiningardeild Arionbanka á villigötum.

Fyrir hrun höfðu greiningardeildir bankanna sérkennilegt hlutverk. Í reynd voru þær einhvers konar auglýsingarstofur sem höfðu það hlutverk að selja fegraða mynd af veruleikanum. Ónefndur stjórnmálamaður taldi þær jafnoka Þjóðhagsstofnunar sem hafði verið lögð niður. Nú er öldin önnur. Arionbanki er viðskiptabanki í eigu erlendra(bandarískra)vogunarsjóða. Greinigardeild er við bankann og samkvæmt nýjustu grein hennar hefur hún svipað hlutverk og hagfræðingasett Samtaka atvinnulífsins. Boðskapurinn er gamalkunnur og hefur verið endurtekinn í áratuganna rás. Hann er þessi: of miklar launahækkanir leiða til hækkunar á verði vöru og þjónustu og almennrar hækkunar verðlags eða verðbólgu. Og nú kemur gamalt vín á nýjum belgjum. Launavísitala hefur hækkað um 17.6% síðan í maí 2011 þegar síðustu samningar voru undirritaðir en kaupmáttur um 7.4%. Niðurstaðan er gömul, góð og margreynd ; launahækkanir voru fyrirtækjunum um megn! Hér er farið undarlega hratt yfir sögu. Getur það virkilega verið að laun og eingöngu laun hafi áhrif á verðbólgu? Hvað varð um krónuræfilinn og gengi hennar? Hvað varð um vaxtastigið eða fákeppni eða einokun á nánast öllum mörkuðum í landinu? Hvað varð um skiptingu þjóðartekna í launatekjur og tekjur af fjármagni? Allt gleymt og grafið? Auðvitað kemst greiningardeildin ekki hjá því að minnast á eitt og annað af þessu. Það er undarlega fátt sem greiningardeildinni dettur í hug að skoða. Hún nefnir aðeins framleiðnivöxt vinnualfs. Laun mega ekki vaxa hraðar en þessi vöxtur. Hvað þá um framleiðnivöxt fjármagnsins og skiptingu kökunnar margfrægu? Ekki eitt orð. Launaðir lofendur kapitalismans nefndi Karl Marx nokkra af hagfræðingum hans samtíma. Hverjir skyldu bera þessa nafnbót í dag?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband