Landeigendur og náttúruperlur landsins.

Geysir er goshver og eitt ag frægustu náttúruundrum Íslands. Geyser er enskt orð sem merkir goshver. Geysir er í eigu ríkisins. Það eru einnig Strokkur og Blesi. Fyrir nokkrum dögum tilkynnti Landeigendafélag Geysir hf að á næsta ári myndi það hefja hóflega(sic) gjaldtaku á svæðinu. Taldi félagið að nauðsynlegar framkvæmdir á svæðinu hefðu dregist og nú yrði ekki lengur setið aðgerðarlaus. Þessir landeigendur eru ekki þeir einu sem hafa áhuga á gjaldtöku. Landeigendur Kersins hófu gjaldtöku í sumar. Þessi hópur á allt landsvæðið en allt sem gert hefur verið til uppbyggingar á svæðinu hefur ríkið framkvæmt og fjármagnað. Landeigendur Reykjahlíðar hafa tilkynnt gjaldtöku við Dettifoss á næsta ári. Staða landeigenda við Geysi er bágborin. Ríkið á 30% landsins og Umhverfisstofnun er rekstraraðili svæðisins. Það er deginum ljósara að félag landeigenda hefur engan rétt til einhliða gjaldtöku og ákvörðun þeirra og fréttatilkynning hefur verið undarlegt frumhlaup. Fjöldi eerlendra ferðamanna hefur vaxið ört á undanförnum árum. Því fylgir vaxandi álag á vinsæla ferðamannastaði. Stjórnvöld verða því að móta stefnuna fyrir greinina í heild. Við hverfum ekki aftur til miðalda og tökum upp brúargjald fyrir hverja brú sem farið er yfir. Hugmyndina um náttúrupassa þarf að útfæra.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband