30.10.2013 | 09:11
Hver er Elisabet Aspaker?
Hún er sjávarútvegsráðherra Noregs og samstarfsráðherra Norðaurland í stjórn Hægri og Framfaraflokksins. Í Noregi virðast sömu vandamál og hér á landi. Ráðherra skortir fagþekkingu. Elisabet er fædd 1962 og hefur lengi starfað fyrir Hægri á sveitastjórnarstigi og í skóla-og menntamálum. Hún er menntaður kennari og hefur gengt mörgum trúnaðarstörfum á því sviði. Hún er þingmaður fyrir Tromsfylki. Skipan hennar í embætti ráðherra sjávarútvegsmála hefur mælst fremur illa fyrir hjá hagsmunasamtökum og félafasamtökum í sjávarútvegi. Þau telja hana óskrifað blað og án sérþekkingar á greininni. Greinin er fjölbreytt og flókin segir formaður Nordland Fylkes Fiskerlag. Ríkisstjórn Verkamannaflokksins og SV stefndi að því að norskur sjávarútvegur yrði í fremstu röð í heiminum en nú óttast hann að þetta verði ekki áfram stefnan. 2005 til 2009 var Aspaker í þeirri nefnd Stórþingsins seem fjallar um menntamál, málefni krikjunnar og málefni vísindalera rannsókna. Hún hefði því hugsanlega orðið ágætur menntamálaráðherra. Einhver kvótaregla virðist vera varðandi ráðherraskipan; einn frá Norður-Noregi,-ein kona gegn einum karli, og svo framvegis. Kannski er Aspaker niðurstaðan úr einhverju slíku dæmi.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar