30.10.2013 | 10:38
Hagstofan : hægur bati á vinnumarkaði.
Úr nýjustu Hagtíðindum má lesa þær upplýsingar að áframhaldandi bati sé á vinnumarkaði. (Etv er óþarfi að minna á að vinnumarkaður hefur dregist saman síðan 2007 sem ekki er heldur gott viðmiðunarár.) Nú eru á vinnumarkaði 180200 starfandi og 8300 án vinnu og í arvinnuleit. Starfandi hefur fjölgað um 7500 á einu ári og atvinnulausum fækkað um 800. Nú eru 1900 manns sem hafa verið atvinnulausir lengur en eitt ár. Hlutfall starfandi er 79.1% af mannfjölda(16 til 74) og leita þarf aftur til ársins 2008 til að finna sambærilegar tölur. 144000 voru í fullu starfi og 36200 í hlutastarfi. Samkvæmt vinnumálakönnun Hagstofunnar er atvinnuleysi 4.4%. Atvinnuleysi er meira á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni og mest hjá aldurshópnum 17 til 24 ára. 45% atvinnulausra höfðu verið án vinnu í 2 mánuði eða skemur. Þessar tölur gefa nokkuð góða mynd af ástandinu en margt fleira þarf að skoða. Hversu algengt er að fólk segi upp störfum og leiti nýrra starfa? Að öðru jöfnu ætti talan að vera tiltölulega lág. Fjarvistir starfsfólk ættu einnig að vera tiltölulega litlar. Þröngt atvinnuástand hefur eðlilega þau áhrif að vald atvinnurekenda vex en vald og möguleikar launafólks minnka að sama skapi.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar