3.11.2013 | 08:59
Kirkjugarðurinn óttast dauðann.
Kirkjugarðurinn í Hamburg Ohlsdorf hefur áhyggjur af viðskiptavinum. Þeim fer fækkandi. Eitt sinn skal hver deyja en Þjóðverjum fækkar og margir kjósa bálför. Reglugerð um grafir segir að lengd skuli vera 213 cm, breidd 83 cm og dýpt 170 cm.Kirkjgarðurinn er 391 hektari eða níu sinnum stærri en Vatikanið. Þar hvíla ein og hálf miljón látinna. 300 starfsmenn eru í krikjugarðinum og hver greftrun rekur aðra eins og um færibandavinnu væri að ræða. Hér hvíla frægir menn og konur. Leikararnir Hans Alberts og Gustaf Grundgens. Hér hvílir klámstjarnan Sexy Cora en hún dó i brjóstastækkunaraðgerð. Látnum er raðað niður eftir þjóðerni á svæðum kirkjugarðsins. Kínverjar eru á bp 68 og Svisslendingar á L 14-15. En nú fækkar viðskiptavinum og það gætu orðið endalok garðsins. Ef hann á að lifa áfram þarfnast hann dauðra. Rómverska kaþólska kirkjan lagði blessun sína yfir bálfarir 1963 og síðan þá hefur fjöldi þeirra vaxið stöðugt. Dauðinn er vara á markaði og þar ríkir samkeppni. Einkareknar bálfararstofur eru víða í Hamborg og nokkrar á iðnaðarsvæðum. Það er hægt að láta brenna lík í Póllandi en koma öskunni fyrir í Þýskalandi. Kaupmáttur og verðskyn ráða ferðinni. Dauðinn er tabú. Menn deyja ekki. Menn fara. En þeir skilja eftir sig minnismerki.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar