4.11.2013 | 10:32
Samtök breskra iðnrekenda vara við útgöngu úr ESB.
Andstæðingar og hatursmenn ESB hafa ráðið pólitískri umræðu nú um nokkurt skeið á Bretlandi. Cameron hefur tilkynnt þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Nú eru fylgjendur ESB að ná vopnum sínum. Í könnun á vegum CBI kom í ljós að 80% stjórnenda fyrirtækja vilja vera í ESB. Af stjórnendum lítilla og meðalstórra fyrirtækja vildu 77% vera í ESB. CBI eru samtök iðnrekenda og Gridland formaður segist ekki vilja vera áhrifalaus útan sambandsins. Samtökin hafa lagt fram ítarlega skýrslu. Þar kemur fram að Bretland hafi greitt hafi greitt 7.3 milljarða nettó til ESB. Landsframleiðsla Bretlands er hins vegar 4-5% meiri en ella vegna ESB aðildar. Það eru 62 til 78 milljarðar punda eða 3000 pund á hvert heimili. Nú ber að taka þessum tölum með nokkurri varúð. Það er afar flókið að reikna út kostnað og hagnað við aðildina. Cameron er í nokkrum vanda. Hann vill vera áfram í ESB en hann verður að friða óánægjuraddir í eiginn flokki. Þeim er vinnulöggjöf og velferðaráherslur ESB þyrnir í auga. UKIP er eini flokkurinn sem vill ganga úr ESB. Verkalýðsfélögin vilja vera inni. Skoðanakannanir sýna að mjótt er á munum milli fylkinga. CBI segir að útganga sé ekki endalok alls en hún myndi þýða versnandi lífskjör og minni þjóðarframleiðsla. (Spiegel).
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar