Gerendur kynferðisofbeldis gegn börnum.

Vitundarvakning hefur orðið um vernd barna gegn kynferðisbrotum. Hún birtist með margvíslegum hætti; sem barátta gegn klámvæðingu og vændi, sem kynfræðsla með unglinga um hvað telst heilbrigð kynhegðun og sem mikil og tilfinningaþrungin umræða um dæmda barnaníðinga og refsingar. Þolendur og gerendur fá mjög ólíka umfjöllun. Minna er um gerendur talað-nema þá um væga dóma sem þeir fá-og oft einkennist umræðan af sterkum tilfinningum og fordæmingu. Nú eru þessi mál flókin eins og annað í samskiptum manna. Til að mynda er gerður greinarmunur á barnagirnd og barnaníði. Barnagirnd er sálræn röskun í flokkunarkerfi lækna og sálfræðinga. Þeir sem brjóta gegn börnum eru oft haldnir barnagirnd en þurfa ekki að vera það. Einstaklingar fæðast ekki sem kynferðisafbrotamenn en þeir verða það vegna áhrifa umhverfis og geðtengsla við mikilvægar persónur í lífi þeirra. Margir fræðimenn telja að klám eigi stóran þátt í því að raska kynheilbrigði einstaklingsins. Börn eru beitt kynferðisofbeldi með ýmsum hætti. Um er að ræða áreitni eða beina snertingu. Brot eru misalvarleg miðað við áhrifin á börnin. Fyrst má nefna kynferðislegan talsmáta við börn. Annað er að sýna barni kynfæri eða stunda sjálfsfróun fyrir framan barnið. Þriðja er að snerta kynfæri barnsins. Fjórða er að hafa munnmök eða láta barnið sleikja kynfæri. Fimmta stig er fullt samræði við barn. Tölur um kynferðislegt ofbeldi hér á landi er háar. Í rannsókn frá 2012 kom í ljós að 13% stúlkna og 3% drengja höfðu orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára aldur. Gerendur eru oft velliðnir, vinsamlegir og vingjarnlegir. Algengt er að þeir séu eldri en þrítugir við fyrsta brot. I mörgum tilvikum hefur geðtengslamyndun í bernsku verið slök. Félagshæfni, tilfinningastjórn og sjálfsmat hefur skaðast þess vegna. Gerendur eru sjálfhverfir og líta  ekki á þá sem þeir brjóta á sem jafningja. Þeir sem brjóta gegn börnum eru ekki allir haldnir barnagirnd. Nokkrar erlendar rannsóknir telja að hlutur barnaníðinga sé 60-75%. Hér á landi hafa 235 dómar fallið í brotaflokknum kynferðisbrot gegn börnum frá 1985. Meðalaldur brotamanna er 36 ár og ítrekunartíðni er lág eða 3%. 50% gerenda eru tengdir þolanda á einhvern hátt. Svo sem : feður, fósturfeður, frændur, fjölskylduvinir eða nágrannar. Í 10-20% tilvika eru gerendur ókunnugir þolanda. (framhald).

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband