4.11.2013 | 16:53
Gerendur kynferðisofbeldis gegn börnum.(2)
Barnaníðingar eru líklegri en nauðgarar og ofbeldismenn að þjást af þunglyndi og kvíða. Margir barnaníðingar sýna litla félagslega færni. Þeir eru feimnir og ómannblendnir. Mjög ólíklegt er að þeir séu undir áhrifum vímugjafa þegar þeir fremja brotið. Mikill meirihluti barnaníðinga játar brot sín.
Barnagirnd er að einhverju leyti líffræðileg. Hún er sterk og síendurtekin kynþörf og kynórar gagnvart börnum. Sterkasta form barnagirndar er ef einstaklingur hefur eingöngu áhuga á ungum börnum en engan á fullorðnum einstaklingum. Slíkir einstaklingar eru mjög sjálfhverfir og sjálfselskir. Þeir telja að börnin hafi áhuga á þeim og samskiptin hafi þroskavænleg áhrif á barnið. Þeir upplifa enga vanlíðan vegna hegðunar sinnar. Þeir telja að barnið hafi tælt þá til athæfisins. Ekki er hægt að lækna barnagirnd eða engin aðferð hefur fundist hingað til. Hins vegar er hægt að minnka löngun eða þörf og einnig hæfni til að stjórna löngun. Líklegast er að barnagirnd sé samspil líffræðilegra þátta og umhverfisþátta. Hún mun þá þróast og mótast á táningsaldri. Klám er mikilvægur umhverfisþáttur. Það er auðveldlega aðgengilegt fyrir unglinga. Klám er ekki kynfræðsla en getur haft mikil áhrif á kynhegðun og kynhneigð. Allt það sem miðar að kynheilbrigði unglinga er af hinu góða. Það er mikilvæg forvörn. Hitt er að fylgja þeim eftir sem hafa gerst brotlegir og hafa setið af sér dóm. Eitt er öruggt; þeir hafa ekki læknast af barnagirnd á Litla Hrauni. Þeir koma út óbreyttir með sömu þrár.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar