5.11.2013 | 07:43
Svört atvinnustarfsemi í ferðaþjónustu.
Áætlað er að 1500(!) herbergi á höfuðborgarsvæðinu séu leigð erlendum ferðamönnum ólöglega. Á landinu öllu eru þau talin vera 1800. Þessar tölur eru varlega áætlaðar út frá erlendum vefsíðum. 3000 herbergi eru í löglegum rekstri í Reykjavík og sýnir hlutfall þessara talna umfang svartrar starfsemi. Svört atvinnustarfsemi virðist vera að vaxa þrátt fyrir að ýmislegt hefur verið gert. Það er alveg ljóst að skattyfirvöld verða að beita sér af miklu meiri krafti en hingað til. Til þess þurfa þau m.a. eindreginn pólitískan stuðning. Ólögleg atvinnustarfssemi veldur miklum skaða. Hún skekkir samkeppnisstöðu. Starfsfólk verður réttlaust og starfsöryggi ekkert. Hún hefur neikvæð áhrif á skattasiðferði og á siðferði almennt. Það eru fáir sem græða og þeir græða á kostnað allra hinna. Um umtalsverðar upphæðir er að ræða. Samkvæmt tölum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar sem birtar voru í lok október var greiddi hver erlendur ferðamaður 89000 með greiðslukortum í september. Stæðsti einstakiliður er gistiþjónusta en kortavelta á gististöðum var 1.6 milljarður þennan umrædda mánuð. Það er 26% aukning frá sama mánuði í fyrra. Þessar tölur hafa sínar takmarkanir. Ef greitt er fyrir ólöglega gistingu t.d. í gegnum paypal kemur greiðslan ekki fram í þessum tölur. Hægur vandi er fyrir skattyfirvöld að hafa samstarf við greiðslufyrirtækin.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar