5.11.2013 | 16:35
Lady Gaga rekur Troy Carter umboðsmann sinn.
Nokkrum dögum fyrir útgáfu nýrrar plötu er umboðsmaðurinn rekinn. Carter hefur verið umboðsmaður Stefani Germanotta-Lady Gaga- síðan árið 2007. Þá var fyrsta plata hennar ekki komin út. Ávallt hefur verið talið að Carter eigi mikinn þátt í því að gera tónlistarkonuna að megastjörnu. Ástæður brottreksturs eru ekki ljósar. Mismunandi áherslur í tónlistarsköpun? Tilfinningaleg og persónuleg fjarlægð? Sífellt er verið að segja upp umboðsmönnum en núna eru aðstæður óvenjulegar. Mikilvæg útgáfa stendur fyrir dyrum. Siðasta albúm Lady Gaga kom út 2011. Það var: Born this way og seldist í meira en 2 milljón eintökum í USA. Markaðssetningin var kraftmikil og fagmannleg. Lady Gaga á í stöðugum samskiptum við aðdáendur sína á Twitter en þeir eru 40 milljónir talsins. Hún nýtir samfélagsmiðla á mjög virkan hátt. En hún á sína slæmu daga. Framkoma hennar á verðlaunaafhendingu You Tube varð tilefni háðs og gagnrýni. Carter er auðugur maður og er m.a. umboðsmaður John Legend og Lindsey Sterling. Hann er fjárfestir og hefur hagsmuni víða að gæta.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar