Wang Jianlin er ríkasti maður Kína. Hann keypti myndina í New York í gær á uppboði hjá Christie. Boðin voru upp mörg verðmæt listaverk eftir m.a. Paul Klee, Joan Miro og Gerhard Richter. Málverk eftir þessa listamenn voru reyndar ekki seld. Myndir á uppboðinu voru úr safni Jan Krugier. Krugier lifði af dvöl í útrýmingarbúðum nasista og gerðist listaverkasali í Genf. Hann lést 2008. Wang er númer 84 á lista Bloomberg yfir auðugustu menn jarðar. Hann er stofnandi og stjórnarformaður Dalian Wanda sem er kínverskt risafyrirtæki. Það fæst við byggingu atvinnuhúsnæðis rekur verslunarkeðju, starfar í ferðaþjónustu, rekur hótel og skemmtistaði. Kaup Wangs á þessu listaverki er dæmigert fyrir kínverska auðmenn. Í Kína blómstrar mikill markaður með listmuni og menningarverðmæti. Þar er lögð mikil rækt við fornan menningararf.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar