8.11.2013 | 11:51
Gyðingahatur í Evrópu.
Gerð var umfangsmikil rannsókn og í henni tóku þátt 6000 Gyðingar í 8 ríkjum ESB. Mest ber á Gyðingahatri í Þýskalandi. Þátttakendur komu frá Frakklandi, Ungverjalandi, Bretlandi, Svíþjóð, Þýskalandi, Ítalíu, Litháen og Belgiu. Talið er að 90% allra Gyðinga í Evrópu búi í þessum löndum. Spurningum var svarað á netinu og allir sem tóku þátt voru gyðingtrúar samkvæmt eigin upplýsingum. Rannsóknin beindist að því hvernig Gyðingar skynja hættu en ekki hvort þeir hefðu orðið fyrir árásum eða aðkasti. Tveir þriðju töldu andúð á Gyðingum vera vandamál í Evrópu og þrír fjórðu töldu að andúðin hefði vaxið á síðustu fimm árum. Helmingur óttaðist að verða fyrir munnlegum árásum. Þriðjungur óttaðist að verða fyrir líkamlegri árás. Helmingur óttaðist að barnabarn yrði fyrir árás ef það gæfi greinilega til kynna að það væri Gyðingur. Við rúman helming hafði verið fullyrt að Helförin hefði ekki átt sér stað eða að frásagnir væru stórlega ýktar. Samkvæmt skýrslum lögreglunnar hefur brotum gegn gyðingum fækkað síðan árið 2009. Mikill meirihluti spurðra í könnuninni sagðist ekki hafa tilkynnt áreiti og árásir til lögreglu. Helmingur þýskra Gyðinga hafði fengið að heyra að Ísrealar kæmu fram við Palestínumenn eins og þýskir nasistar við Gyðinga. Mjög marg af því sem sagt er neikvætt um Gyðinga kemur fram á bloggsíðum, í athugasemdakerfum og á samfélagsmiðlum.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar