Siðferði, endurskoðun og svikamyllur.

Endurskoðendur hafa sett sér ítarlegar siðareglur. Þær eru settar fram í riti sem nálgast má á fle.is. Ritið er yfir 100 blaðsíður. Grundvallarreglur sem endurskoðandi skal hlíta eru heilindi, hlutlægni, fagleg hæfni og varkárni, trúnaður og fagleg hegðun. Þessum reglum er lýst nánar í köflum 110 til 150. Endurskoðendur átta sig á að margt getur ógnað þessum grundvallarreglum og þess vegna þarf að grípa til úrlausnaraðferða og varúðarráðstafana. Af lestri siðareglan má ætla að endurskoðendur séu vel meðvitaðir um þá hagsmuntogstreitu og freistnivanda sem felst í starfi þeirra. Endur skoðendur eru margir og mismunandi. Líkt og lögfræðingar. Fimmtudaginn 7.11. 2013 var kveðinn upp dómur í máli 302 í Hæstarétti Íslands. Þetta var mál Eyvindar Jóhannssonar gegn Kpmg ehf og fleiri aðilum. Í fjölmiðlum lýsti Eyvindur því yfir að viðskipti hans við Kpmg hafi verið svikamylla. Hann taldi sig illa hlunnfarinn og fór fram á 214 milljón króna bætur. Hæstiréttur Íslands dæmdi Eyvindi 122.5 milljónir króna. Hann taldi það sigur. Hvítflibbaglæpamennirnir innan KPMG hefðu fengið refsingu og lítilmagninn uppreisn æru. Hver er nú mórallinn í sögunni? Hvað munu stjórnendur í endurskoðunarfyrirtækinu gera? Hvað munu viðskiptavinir fyrirtækisins gera?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband