Hverjir sækja Sinfóníutónleika eða fara í Þjóðleikhúsið?

Árið 2010 gerði Félagsvísindastofnun könnun á menningarneyslu Íslendinga. Nú breytast hlutirnir hratt og ekki víst að allt sé nákvæmlega eins í dag. 75% svarenda í könnuninni höfðu farið í bió síðustu 12 mánuði. Það var mismunandi eftir þjóðfélagshópum hversu hátt hlutfallið var. Tala var tæp 50% hjá þeim sem stunduðu landbúnaðarstörf eða unnu í sjávarútvegi. 60% svarenda höfðu sótt leikhús, óperu eða söngleik. Konur á höfuðborgarsvæðinu eru líklegastar til að sækja slíkar skemmtanir. 59% svarenda höfðu sótt tónleika. Flestir eða 63% höfðu farið á dægurlagatónleika. 42% höfðu sótt klassíska tónleika. (0.59x0.42=0.2478)Ef við alhæfum út frá þessu er það fjórðungur þjóðarinnar sem sækir klassíska tónleika. 6% svarenda höfðu sótt danssýningu. 53% höfðu sótt listasafn eða myndlistarsýningu. 61% höfðu heimsótt sögustaði, s.s Þingvelli og Skálholt. 55% höfðu farið á menningarhátíð eða útihátíð. Tiltölulega fleiri af landsbyggðinni höfðu sótt slíkar hátíðir. Eingöngu 34% svarenda höfðu sótt íþróttaviðburð. Í könnuninni var spurt um fjölmörg önnur atriði,t.d. hverjar væru ástæður þess að fólk sækti ekki menningarviðbruði. Það var einnig spurt að því hvort menn teldu að of litlu fé væri varið í að styrkja menningarstarfsemi. Minnihluti eða 38% var sammála þessu. Nú vitum við ekki hverjar eru skoðanir fólks í dag en fróðlegt að gera vandaða könnun um málefnið.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband