9.11.2013 | 13:13
Nýjir þjóðernissinnaðir hægri flokkar í Evrópu sækja í sig veðrið.
Það sem sameina þessa flokka í Evrópu er að þeir beita sér gegn innflytjendum, niðurskurðarstefnu og ESB. Í Danmörku barðist Mikkel Dencker frá Danska þjóðarflokknum gegn því að kjötbollur með svínakjöti yrði tekið af matseðli leikskólabarna. Dencker hefur brugðist harkalega við. Nú hafa langt í frá allir leikskólar gert þetta. Dencker telur hins vegar að kjötbollurnar séu mikilvægur hluti af danskri matarmenningu og henni vill hann viðhalda. Amk alls ekki breyta henni vegna íslamskra hefða. Dencker er með næmt nef og veit hvað fólk hugsar og hann notfærir sér það. Í fjölmörgum löndum Evrópu hafa smáflokkar , þjóðernissinnaðir og hæggrisinnaðir náð árangri og ógna hefðbundnum flokkum með einhverjum hætti. Í Frakklandi, Bretlandi, Austurríki, Holllandi, Búlgaríu , Finnlandi og Tékklandi hafa slíkir flokkar komið fram. Mikið atvinnuleysi og röng efnahagsstefna eins og niðurskurðarstefnan er sérstaklega hættuleg blanda. Hún skapar jarðveg fyrir lýðskrumara en þeir geta hæglega náð fylgi og komist á þjóðþing og Evrópuþingið. Þessir flokkar eru evrópsk útgáfa af Teboðshreyfingunni með þeim mikilvæga mun það þeir styðja velferðarkerfið. Í Grikklandi og Ungverjalandi hafa komið fram nýfasískir flokkar. National Front vill röð og reglu og vill einnig takmarka fjölda innflytjenda. Hins vegar eru þeir á móti stórfyrirtækjunum og alþjóðavæðingunni. Í Hollandi berst Frelsisflokkrinn gegn íslömskum áhrifum. Nýju flokkarnir á hægri væng eru tákn og viðbrögð við flóknum félagslegum breytingum. Alþjóðavæðing og fjölmenningar samfélag skapar margvíslega spennu. Flokkarnir eru ofurviðbrögð gagnvart henni.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar