Heineken í Kongó: blóð og bjór.

Hermennirnir nauðga, pynta og drepa- og fá sér svo bjór á kvöldin. Í Kongó hefur fyrirtækið borgað skatta og skyldur til stríðandi aðila í borgarastríðinu og getur þess vegna haldið áfram að selja bjórinn.Í borgarastyrjöldinni gildir ein regla: þú getur sprengt sjúkrahús í loft upp en ekki Bralima. Bralima er samheiti fyrir bjór og brugghúsið er í eigu risafyrirtækisins í Amsterdam. Á hræðilegustu augnablikum borgarastyrjaldarinnar var alltaf hægt að nálgast bjór. Í Kivu héraði voru tugþúsundir manna á flótta, morð, nauðganir og pyntingar voru daglegt brauð. Í þessum hryllingi var einn fasti : bjórinn. Markaðurinn er risastór. Salan á bjór á mánuði er tvær milljónir dollara. Auk annarra drykkja. Uppreisnarmenn RCD-Goma ráða Kivu héraði. Skattur þeirra er fimm og hálfur dollari á bjórkassa. Heineken borgar einnig vegtolla sem komið hefu verið upp víðsvegar. Skatt-og tolltekjur eru notaðar til að kaupa vopn. Hvað annað? Heineken hefur verið mörg ár í Kongo. Nú eru 6 bruggverksmiðjur í landinu. Starfsmenn eru 3300. Afleidd störf eru margfalt fleiri. En þessi saga snertir ekki eingöngu Heineken. Hún snertir fjölmörg alþjóðleg fyrirtæki sem halda starfsemi sinni áfram í stríðshrjáðum löndum og án þess að velta siðferði viðskipta fyrir sér á nokkurn hátt. (Spiegel)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband