11.11.2013 | 11:13
N Chomsky: af hverju vill ekkert ríki líkjast USA?
Nýlega ritaði kínverskur fréttaskýrandi að USA gæti ekki verið ábyrgur aðili í alþjóðlegum samskiptum. Þau væru að glata trúverðugleika og önnur ríki myndu fjarlægja sig frá þeim til að losna undan margvíslegum áhrifum. USA er gjarnan lýst sem eins flokks ríki. Stjórnmálaflokkurinn heitir : Flokkur stórfyrirtækja. Hann er tvískiptur í demókrata og republikana. Þetta hefur breyst og nú er flokkurinn ekki tvískiptur. Í honum eru nú eingöngu hófsamir repúblikanar sem kalla sjálfa sig Nýja demókrata. Það eru til samtök sem kenna sig við Republikana en þeir hafa löngu hætt að vera lýðræðislegur og þingræðislegur flokkur. Flokkurinn er læstur inni í þjónkun og þjónustu við hina ofurríku og auðhringina. Þar er fá atkvæði að fá en þá hefur Teboðið virkjað þann hluta kjósendahópsins sem er öfgafullur á alla venjulega mælikvarða. Þetta pólitíska afl er hægt að nota til að einkavæða, til að takmarka vald hins opinbera og til þess að losa markaðinn undan íþyngjandi rerglum. Sumir hlutar hins opinbera koma að góðu gagni af því að þeir verja auð og forréttindi. Lögregla og her eru dæmi um þetta. Margir stjórnmálaskýrendur hafa líkt risaveldinu USA við þorpara eða rudda sem sé ógn við heimsfriðinn. Washington fjarlægist heiminn með því að hafna sífellt fleiri alþjóðlegum samningum og samþykktum. Sérsveitir bandaríska flotans hafa ráðist inní önnur ríki , tekið menn af lífi eða fært þá burtu til yfirheyrslu. Hvers konar ríki leyfir sér þetta og kemst upp með þetta? Hvaða ríki leyfir sér það að ráðast hvað eftir annað með drónum á önnur ríki? Gilda ekki alþjóðalög? USA hagar sér þannig eins og lögmæti aðgerða ráðist af þeirra eigin yfirlýsingum.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar