11.11.2013 | 14:33
Sjö kröfur til ESB framtíðarinnar.
Sex forstjórar stórra þýskra fyrirtækja skrifuðu grein í FAZ- Frankfuter Allgemeine Zeitung sem er eitt að stærstu dagblöðum Þýskalands. ESB stendur frammi fyrir gífurlegum áskorunum. Skuldakreppan er tákn um alvarleg mistök í hagstjórn. Fjölmörg fyrirtæki eru í alþjóðlegri samkeppni og til þess að standast hana verður að gera mikilvægar umbætur. Innan ESB búa 7% íbúa jarðar, 25% af heimsframleiðslunni er framleidd í ESB og 50% af útgjöldum til félagsmála eru greidd innan ESB. ESB hefur skapað velmegun, frið og lýðræði í Evrópu. Til þess að svo megi vera áfram þarf að framkvæma eftirfarandi. 1. ESB verður að vera opnari og sveigjanlegri. Ekki er hægt að stýra öllu frá Brussel. Aðildarríki geta ekki gengið öll í takt. 2. Valddreifing og lýðræði verður að einkenna ESB. Þjóðþing eiga að hafa vald til að hafna einstökum reglugerðum. Fullveldið er hjá borgurum aðildarríkjanna. 3. Það verður að stöðva gífurlegt greiðsluflæði í sjóði til styrktar landbúnaði og ákveðinna svæði. Þessir fjármunir skapa lítinn hagvöxt og fá störf. 4. Kostnaður við skrifræði og skriffinnsku í Brussel vex á kostnað smárra og meðalstórra fyrirtækja sem eiga í samkeppni. Veita þarf þessum fyrirtækjum svigrúm til að koma fram með nýjungar og nýsköpun. 5. Gera þarf fyrirtækjum auðveldara að komast inná markaðinn. Fríverslunarsamningur við USA býður uppá mikla möguleika. 6. Vinnuaflið á sameiginlegum markaði þarf að verða hreyfanlegra. Atvinnuleysi í Suður Evrópu en skortur á vinnuafli á sumum svæðum í Norður Evrópu. 7. Fjármála-og peningastjórnun aðildarríkjanna verður að byggja á sama grunni. Fyrirtæki innan ESB verða að vera samkeppnishæf á á alþjóðlegum mörkuðum. ---Svo mörg voru þau orð.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar