12.11.2013 | 11:52
Fjárhagsstaða sveitarfélaga 2012.
Fjármál sveitarfélaganna markast af hruni bankakerfisins eða fjármálakerfisins í heild sinni. Þróun nokkurra vísitala árin 2007 til 2012 skýrir málið. Á þessu tímabili hækkaði gengisvísitalan um 86% og vísitla neysluverðs um 51%. Heildartekjur sveitarfélaganna uxu á sama tíma um 28.6%. Rauntekjur hafa því lækkað. Á sama tíma jukust rekstrargjöld um 36.4%. Laun og launateng gjöld sem hlutfall af heildartekjumm hefur hækkað. Á tímabilinu hefur framlegð sem hlutfall af heildartekjum lækkað úr 15% í 9%. Skuldir og skuldbindingar hafa vaxið um 55% á tímabilinu. Nettóskuldir hafa vaxið úr 54% í 99%.
39 sveitarfélög stóðust ekki fjárhagsleg viðmið sveitastjórnarlaga. Skuldahlurtfall má ekki vera hærra en 150%. Við þær aðstæður fara 15% tekna í afborganir. Nefna má Stykkishólmsbær þar sem skuldahlutfallið er 150%, Ísafjarðarbær með 175%, Kópavogsbær með 244%, Sandgerðisbær með 388% og Norðurþing 245%. Skuldahlutfall Reykjanes bæjar er 257%. Öllsamstaðan skuldar 37.5 milljarða. Sérstakar aðgerðir og samningar voru gerðir við eftirfarandi sveitarfélög: Svalbarðshrepp, Vesturbyggð,Sandgerðisbæ, Skaftárhrepp og Grundafjarðarbæ. Í stærsta sveitarfélagi landsins; Reykjavík voru íbúar 119764 árið 2012. Skuldahlutfall var 83% og netto 54%.Heildartekjur á íbúa voru 610 þúsund krónur en heildarskuldir 508 þúsund krónur. Garðabær er draumasveitafélag tímaritsins Vísbendingar árið 2013. Síðan koma Seltjarnatnes, Snæfellsbær og Hornafjörður. Á botni listans er Álftanes og Kópavogur. Í þessum samanburði er Reykjavík í 31. sæti. Almennt séð er þróunin jákvæð í fjármálum sveitarfélaga.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar