15.11.2013 | 12:03
Hvað er að frétta af vogunar-og hrægammasjóðunum?
Í gær birti Bloomberg fréttaveitan ítarlega fréttaskýringu um vogunarsjóði og Ísland. Árið 2008 þegar íslenska bankakerfi hrundi til jarðar flugu hrægammar á staðinn til að kaupa kröfur fyrir slikk en á Íslandi sitja þeir enn fastir. Fyrir kosningar hafði Framsókn uppi stór orð um það hvernig fara ætti með slíka fugla. Eftir kosningar hefur hins vegar lítið heyrst og ekkert verið gert. Viðskipti með kröfur fallinna banka eru víða stundaðar. Eftir að skuldunautar hafa borgað vex verðgildi krafnanna og hægt er að selja þær með hagnaði. A Jent sem er stjórnarformaður stórs vogunarsjóðs skilur málið mæta vel; auðvitað vilja íslensk stjórnvöld taka af okkur allar eignir og setja í ríkissjóð en fyrir slíkur aðgerðum er enginn lagalegur grundvöllur hvorki í íslenskum lögum né í alþjóðlegum rétti. Hann segist munu hitta skilanefnd Glitnis og stjórnendur Seðlabanka Íslands 18.11. en það hefur ekki fengist staðfest. Það verður að aflétta banni við fjármagsnflutningum segir Jent. Annars mun Ísland ekki komast út á alþjóðlega fjármálamarkaði og skapa vænleg skilyrði fyrir erlenda fjárfesta í landinu. Upptaka eigna eða mikil skattlagning mun leiða til mikilla efriðleika , svipað og Argentína hefur lent í segir Jent. (framhald). Jent er þeirra skoðunar að rúmlega 20 sjóðir eigi mikilla hagsmuna að gæta og muni mæta á fundi á Íslandi. 80 sjóðir hafa keypt einhverjar kröfur. Nú er vitnað í DO sem vill láta kröfuhafa fá 25% af virði eigna. Á þetta er litið sem hugmyndir ritstjórans um upphafskröfur. Mikið af eignum þrotabúanna er í reiðufé og það er talið kröfuhöfum í hag. Fréttastofan greinir mun í málflutningi fjármálaráðherra og forsætisráðherra og kemur það varla á óvart. Þetta segir Jent skapar erfiðleika í komandi viðræðum. Afstaða viðmælandans verður að vera skýr.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar