15.11.2013 | 16:25
Munu Þjóðverjar snúast gegn evrunni?
Þjóðverjar voru á móti lækkun stýrivaxta hjá Evrópska Seðlabankanum í 0.25%. Og nú ætlar Framkvæmdastjórn ESB að rannsaka sérstaklega hvort mikill afgangur á viðskiptajöfnuði Þýskalands sé ein af mikilvægari ástæðum óstöðugleika á evrusvæðinu og hugsanlega víðar. Gagnrýni á útflutningshagkerfi landsins hefur valdið reiði margra. Er Þýskaland orðið blóraböggull eða einfaldlega úr takti við alla aðra? Þjóðverjar hafa hingað til verið helstu stuðningsmenn evrunnar en nú virðist stuðningur minnka. Sérstakur stjórnmálaflokkur -Alternative fur Deutschland-vill taka aftur upp þýska markið. Þjóðverjar eru sannfærðir um að þeir hafi staðist kreppuna ágætlega; landsframleiðsla er 8% meiri en fyrir 3 árum, atvinnuleysið er 5.2% og ríkissjóður er rekinn með afgangi. Ef tekið er tímabilið frá 1999 blasir önnur mynd við. Vöxtur landsframleiðslu og framleiðni er með því minnsta á evrusvæðinu. Fyrir 60% launafólks í Þýskalandi hafa raunlaun lækkað. Fjárfestingarhlutfall í Þýskalandi er einnig með því lægsta sem gerist á evrusvæðinu. Þjóðverjar lifa í þeirri trú eða sjálfsbelkkingu að stjórnvöld annarra Evrópuríkja vilji komast yfir peninga þeirra. Þeir hafa verið vantrúaðir á evrópskt bankabandalag. Þjóðverjar virðast trúa því að kreppan sé kreppa evrunnar. Sannanlega hefur evran verið Þjóðverjum hagstæð og kreppan á evrusvæðinu líkist ekki gjaldeyriskreppum. Evran er ekki of hátt skráð og gengi hennar er stöðugt gagnvart helstu gjaldmiðlum. Evrusvæðið er jafn hagkvæmt myntsvæði og USA. Verulegur munur er á landsvæðum og ríkjum innan svæðanna. Vandi evrusvæðisins er pólitískur og verður leystur eða ekki leystur með pólitískum ráðum.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar