16.11.2013 | 06:59
Umbótum í Kína vel tekið í Þýskalandi.
Umbæturnar sem miðstjórn Kommúnistaflokks Kína ákvað nýlega snúa bæði að stjórnmálum og efnahagsmálum. Nú á gengisskráning að verða gegnsærri, fleiri einkafyrirtæki fá að starfa og barátta gegn spillingu verður meiri og markvissari. Kína mun leggja meiri áherslu á einkaneyslu en ekki eingöngu útflutning og fjárfestingu. Þýskir útflytjendur sjá aukna möguleika. Í fréttum hefur vakið arhygli að Kínverjar hyggjast leggja niður svokallaðar endurhæfingabúðir fyrir pólitíska fanga og um á að gera reglur um eitt barn í fjölskyldu sveigjanlegri. Margvíslegar umbætur verða gerðar á skipan efnahagsmála : 1)einkabankar verða leyfðir. Komið verður á innistæðutryggingarkerfi og fjárfestar geta keypti hluti í ríkisfyrirtækjum. 2)markaðurinn á að hafa meiri áhrif á verðmyndun. 3)gengi Yuansins verður meira stýrt af markaðsöflum. 4) opinber eign, samvinnufélög og einkaeign eiga öll að fá að njóta sín. 5)skattkerfið verði einfaldað. Sérstakir neysluskattar á lúxusvörur, vörur sem valda mengun og sem krefjast mikillar orku. 6) reglur um kaup og sölu á landi verða rýmkaðar. Þýsk fyrirtæki munu ekki eingöngu flytja út vörur til Kína heldur fjárfesta þar og framleiða vörurnar á staðnum. Vextir hafa hingað til verið mjög lágir Kína. Það þýðir að raunávöxtun getur verið neikvæð fyrir þá sem eiga sparifé á bók. Lágir vextir hafa hins vegar virkað mjög hvetjandi á fjárfestingar. Þetta mun líklega breytast.(Spiegel).
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar