Kreppan sviptir fólk frelsi.

Mannréttindahugtökin ná yfir pólitísk og borgaraleg réttindi. Þau ættu einnig að ná til efnahagslegra og félagslegra réttinda. Þessu heldur bandaríski hagfræðingurinn Radhika Balakrishnan fram. Stjórnvöldum ber skylda til að tryggja mannréttindi allra borgara. Fjármálakreppan hefur grafið undan grundvallarmannréttindum í USA. Áhrifin á lífskjör fólks eru gífurleg.  Störf hafa verið lögð niður og fólk er varnarlausara en áður var. Fátækt hefur aukist sérstaklega hjá konum og blökkumönnum. Í 22. grein Mannréttindayfirlýsingar SÞ er tekið fram að allir eigi rétt á félagslegu og efnahagslegu öryggi og aðgang að þeim gæðum sem hæfa mannlegri reisn og virðuleika. Stjórnvöld í USA hafa tekið á afleiðingum fjármálakreppunnar með þeim hætti að það er árás á mannréttindi almennings. Fjármálakreppur eru ekki náttúruhamfarir. Þær verða við ákveðnar pólitískar aðstæður sem stjórnvöld hafa skapað. Stjórnvöld hafa vald til þess að hafa áhrif á markaðinn og helstu gerendur hans. Hagsmunir stórfyrirtækja hafa hins vegar ráðið en ekki almennir hagsmunir. Stjórnvöld setja lög og reglur með ákveðin markmið. Árið 1933 voru Glass Steagall lögin sett. Þau settu bönkum þröngar skorður. Þeir gátu ekki átt fjármálastofnanir og gátu ekki beitt sér á hlutabréfamarkaði. Auk þess ákváðu lögin hvernig vaxtamyndun ætti sér stað. Á 10. áratug síðustu aldar var losað um þær skorður sem bönkunum höfðu verið settar. Reglur voru einfaldaðar og aftengdar. Í reynd varð það svo að bankar tóku enga áhættu með því að veita fólki lán og lánveitingar fóru úr böndunum. Núna hefur Seðlabanki USA aukið peningamagn mjög mikið sem viðskiptabankarnir sitja uppi með en lána ekki. (Klassekampen)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband