Vændi í Þýskalandi. Var gengið of langt 2001?

Fyrir 12 árum samþykktu Jafnaðarmenn og Græningjar ný lög sem færðu vændiskonum aukin réttindi. Þær fengu nú aðgang að tryggingum, heilsugæslu, eftirlaunum og öðrum almennum réttindum. Markmiðið var að gera vændi að löglegri og öruggri atvinnugrein. Það átti að losa greinina við glæpamenn, ofbeldi og eiturlyf. Svíþjóð fór allt aðra leið. Árið 1999 varð það brot samkvæmt lögum að borga fyrir kynlíf. Með þessu vonuðust Svíar til að losna við vændi. Kaupandinn varð nú brotlegur og skömmin og simplunin féll á hann en ekki vændiskonuna. CDU/CSU greiddi atkvæði gegn frumvarpinu 2001 en nú fara fram stjórnarmyndunarviðræður við SPD og ljóst er að breytingar munu verða gerðar á þessum lögum.Vændi virðist hafa minnkað í Svíþjóð en Þýskaland er nánast orðið að áfangastað í kynlífstúrisma. Giskað er á að fjöldi vændiskvenna sé nálægt 400000 og ekki nema lítið brot nýtur allra réttinda velferðarkerfisins. Einstök lönd sambandsríkisins og sveitastjórnir ákveða hvar vændishús eru staðsett og aðeins í Berlín eru ákveðin afmörkuð svæði. Mörg vændishús eru staðsett nálægt landamærum Frakklands þar sem mun strangari lög um vændi gilda. Ef allir kynlífsstarfsmenn myndu vera í greininni af frjálsum vilja væri það í anda laganna frá 2001. Ýmis samtök vændiskvenna halda því fram að þetta sé svona í meginatriðum. Það dylst hins vegar engum að mikill fjöldi fátækra stúlkna frá þorpum í Rúmeníu og Búlgaríu stunda vændi og hafa liklega verið þvingaðar til þess. Alice Schwarzer sem er róttækur femínisti segir vændi vera nútíma þrælahald. Löndin gengu í ESB 2007 og síðan  þá hefur fljöldi fólks frá þessum löndum komið til Þýskalands. Margir halda því fram að mansal í stórum stíl eigi sér stað en erfitt er að sannreyna það vegna skorts á vitnum. Ráðandi stefnur í Svíþjóð og Þýskalandi er andstæður en hugmyndafræðilegur grunnur þeirra er sá sami. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband