17.11.2013 | 09:04
Króatía. Nokkrar staðreyndir.
Króatía lýsti yfir sjálfstæði gagnvart Júgóslavíu 1991 en við tóku ár miskunnarlausa og harðra átaka. 2009 gekk landið í Nato og 2013 í ESB. Króatar eru tæp 90% af íbúum landsins en Serbar 5% og aðrir 5%. 88% íbúa eru rómversk-kaþólskir. Íbúar eru 4.5 milljónir. 27% íbúa eru undir 25 ára aldri. 60% íbúa búa í þéttbýli og stærsta borgin heitir Zagreb.Konur sem fæðast nú geta vænst þess að lifa í 80 ár og karlar í rúm 72. Barnadauði er 5.96 á 1000 lifandi fædd börn. Í Króatíu miðast kosningaréttur við 18 ár en 16 ef viðkomandi er í fullu starfi. Á vinnumarkaði eru 1.7 milljón manna og 69% vinna í þjónustugreinum, 29% í iðnaði og 2% í landbúnaði. Rúmlega 20% íbúa eru fyrir neðan fátæktarmörk. Brúttó landsframleiðsla á mann var 10294 evrur árið 2012. Í landinu eru 1.5 milljón heimila og meðalfjöldi í heimili 2.8. (CIA)
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar