Aukið þunglyndi hjá ríkjum þjóðum?

Greinileg aukning á notkun þunglyndislyfja hefur verið hjá ríkari þjóðum undanfarinn áratug. Í nokkrum löndum fá meira en 10% fullorðinna þunglyndislyf. Kanada, Ástralía og öll Norðurlöndin eru í þessum hópi. Á undanörnum 3 árum hefur notkun slíkra lyfja aukist um 20% á ári í Kína en notkun var mjög lítil þar áður. Mjög líklegt er að læknar ávísi lyf við veikari tegundum þunglyndis. Án efa hefur fjármálkreppan og afleiðingar hennar haft sín áhrif. Á Spáni og Portúgal hefur notkun þessara lyfja aukist mikið. Þeir sem eru alvarlega sjúkir verða að taka lyf en ef um mildari afbrigði þunglyndis er að ræða eru lyf ekki nauðsynleg. Önnur meðferðarforn eins og viðtöl , hópmeðferðir og ráðgjöf bera árangur. Sjálfshjálparhópar gera mikið gagn. Ef ekkert af þessu er til staðar geta lyf hjálpað. Árið 2011 voru skammtar á dag á Íslandi 105.8 á hverja 1000 íbúa.  1989 var talan 14.9 á hverja 1000 íbúa. Í mjög mörgum löndum hefur orðið aukning en ekki svona gífurleg. Á þessu er fleiri en ein skýring sem læknar og félagsvísindamenn þurfa nauðsynlega að greina. Það er ljóst að mjög hraðar og miklar þjóðfélagsbreytingar hafa átt sér stað á þessum tíma. Nú þekki ég ekki hvernig greiningarhæfni lækna hefur þróast á þessum tíma.Auðvitað er rétt að skoða aukiðframboð á lyfjumog tilkomu nýrra lyfja. Nú er þunglyndi alvarlegur sjúkdómur og ein af mikilvægari ástæðum örorku. Virkni þunglyndislyfja er mjög umdeild og niðurstöður rannsókna misvísandi. Sjúkdómurinn er erfiður í greiningu og miklu skiptir að hann sé greindur rétt í upphafi. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband