9.1.2014 | 20:20
Ótti við útlendinga í Bæjaralandi.
CSU eða kristilega bandalagið í Bæjaralandi hefur beitt sér gegn ótakmörkuðum innflutningi fólks frá Rúmeníu og Búlgaríu. Þeir hafa bent á að það sé ekki eingöngu menntað fólk eins og verkfræðingar sem vilji koma til þýskalands. Umfjöllun um útlendinga á sér hefð í Þýskalandi. Þýska efnahagsundrið byggðist að miklu leiti á innfluttu vinnuafli. En hvað óttast Bæjarar?Þeir óttast að mikið af fátæku og ómenntuðu fólki komi til landsins. Þeir óttast að það verði byrði á velferðarkerfinu. Þeir óttast bótasvik...Og þeir óttast Roma og Sinti. Í Brussel eru menn annarrar skoðunar. Aðflutt vinnuafl mun gagnast þýsku hagkerfi. Menn gera að því skóna að CSU sé að verða að teboðshreyfingu Þýskalands. Ýmis rök má færa þeirri staðhæfingu til stuðnings ; CSU menn hafa sagt : sá sem verður uppvís að bótasvikum, honum spörkum við úr landi. Jafnvel það að vera atvinnulaus í Þýskalandi er betra hlutskipti en að vera í illa borgaðri vinnu í Rúmeníu eða Búlgaríu. Í Þýskalandi fá menn t.d. barnabætur. 2013 fengu rúmlega 32000 Rúmenar og Búlgarir barnabætur í Þýskalandi. Roma fjölskylda með 6 börn getur fengið 3000 evrur. Slík mál eru nú útkljáð fyrir dómstólum. Þýskaland er og hefur verið mjög opið gagnvart útlendingum. Án þeirra hefði þýska efnahagsundrið ekki átt sér stað. Málið er hins vegar mjög tilfinningabundið af sögulegum ástæðum.
9.1.2014 | 16:08
USA ; þungir dómar í hvítflibbaafbrotum.
Í blaðinu The Wall Street Journal birtist grein um 10 þyngstu dóma í þessum brotaflokki. Greinin birtist í desember síðastliðnum. Þyngsta dóminn til þessa hefur hlotið Sholam Weiss eða 835 ár. Hann var dæmdur fyrir margvísleg fjársvik , m.a. peningaþvætti. Keith Pound var dæmdur í 740 ára fangelsi en dó í fangelsi 2004 og var þá 51 ára gamall. Neðar á listanum er Bernie Madoff en hann var dæmdur í 150 ára fangelsi. 17 milljörðum dollara stal hann frá ýmsum fjárfestum en mál hans voru mikið í umfjöllun fjölmiðla. Neðstur Á 12 manna lista WSJ er Martin Sigillto en hans dómur var 40 ár. Hann hafði sett upp Ponzi-svikamillu. --Hvítflibbaglæpir eru iðulega flóknir og erfiðir í rannsókn. Á heimasíðu FBI má lesa um Enron málið. Starfsmenn FBI tóku 1800 viðtöl(yfirheyrsla) og gögn málsins voru í meira en 3000 stórum pappakössum. 22 menn voru dæmdir í málaferlum vegna afbrota þar á meðal allir helstu yfirmenn fyrirtækisins.
9.1.2014 | 13:22
Grænland; Hans Enoksen stofnar nýjan flokk , Partii Naleraq.
Hans Enoksens hefur nú hafið undirskriftasöfnun og það er nauðsynlegt að hafa 964 nöfn til að stofna flokk. Að sögn Hans ætlar flokkurinn að leggja áherslu fiskveiðar og byggðasjónrmið sem hafa verið vanrækt að hans mati. Hann vonast til að hægt verði að safna nægilegum fjölda undirskrifta á næstu mánuðum og haægt verði að halda landsfund og stofna flokkinn á vormánuðum. Hann segist hafa orðið var við víðtækan stuðning og margir hafi haft samband. Deilumál í grænlenskum stjórnmálum eru af margvíslegum toga og ekki auðvelt að setja sig inní þau með skjótum hætti. Það er ljóst að námuvinnslan, sérstaklega vinnsla uran, er erfitt deilumál. Annað er fiskveiðistjórnun og útdeiling kvóta. Þar eru menn sakaðir um að hygla vinum sínum. Sakbandið við Dani skiptir máli. Hvað sem því líður er ljóst að grænlenskt samfélag er á sögulegum tímamótum og afar mikilvægt að sterk politísk forysta verði til í landinu.
9.1.2014 | 10:41
ESB; 2014 er ár mikilvægra ákvarðanna, ræða V Reading.
Vivianne Reading sem er varaforseti framkvæmdastjórnar og dómsmálastjóri hélt mikilvæga ræðu um stöðu mála og þróunina á þessu ári. Árið 2013 einkenndist mikið af uppljóstrunum um víðtækar njósnir. Ríki ESB hafa mótað sameiginlega stefnu hvað varðar netöryggi og gagnavernd. Ljóst er að fólk gerir miklar kröfur um vernd gagna og það verður að verða við þeim kröfum. Kosningar til Evrópuþingsins eru í maí og hin djúpa kreppa hefur hraðað mjög efnahagslegri sameiningu og samstilltri frjármálastefnu. Slíkt hefði ekki verið hugsanlegt fyrir nokkrum árum. Ef við verðum að halda áfram. Það verður að fara fram lýðræðisleg umræða um það hvernig áframhaldandi uppbygging á ð eiga sér stað. Kreppan hefur sýnt okkur að alildarríkin eru ekki eylönd. Það sem gerist í einu ríki hefur áhrif á öll önnur. Tökum bankabandalag sem dæmi (bankunion). Nýlega komu Frakkar með mjög uppbyggilegar tillögum í þessum málaflokki. Við þörfnust raunverulegrar pólitískrar einingar (polital union). Við þurfum að byggja upp bandaríki Evrópu með framkvæmdastjórnina sem ríkisstjórn og tvær þingdeildir, þ.e. Evrópuþingið og þjóðþing aðildarríkjanna. Um þetta er að sjálfsögðu mjög skiptar skoðanir og þarf að ræða til hlítar. Umræða þarf að vera mjög breið og almenn. Til eru efasemdamenn og það er eðlilegt. Kosningaþátttaka til Evrópuþingsins hefur minnkað mjög mikið síðan 1979. En kosningarnar í vor eru afar mikilvægar. Þær snúast um framtíð Evrópu. (Þannig er samantekt á ræðu V Reading.) Það er auðvitað kunnara en frá þurfi að segja að ESB er fjölmenningarlegt og fjölþjóðlegt samfélaga. Mikill fjöldi tungumála er talaður innan sambandsins. Saga 20. aldarinnar er saga skelfrilegra átaka í Evrópu. Skuldakreppan í Suðurhluta Evrópu hefur skapað mikla spennu innan sambandsins. Það er öllum ljóst að framtíðarverkefnin eru erfið en þar að afar mikilvægt að farsæl lausn finnist.
9.1.2014 | 09:48
Hundrað ár frá upphafi fyrri heimsstyrjaldar.
Þetta mannskæða stríð hófst í ágúst 1914 og lauk í nóvember 1918 með uppgjöf Þjóðverja. Í stríðinu féllu 10 milljónir manna, 20 milljónir særðust og mikill fjöldi missti heimili sín. Á þessu ári verður tímamótanna minnst með margvíslegum hætti. An efa verða fjölmargar bækur gefnar út um stríðið, haldnar ráðstefnur og fleira í þeim dúr. Annar af stóru háskólum Berlinar Freie Universitat hefur nú sett á netið alfræðirit sem fjalla á um allar hliðar þessa skelfilega stríðs. Aðallega var barist í Evrópu en stríðið hafði áhrif út um allan heim. Það hafði líka djúptæk áhrif á þá menn sem börðust í stríðinu. Sumir sagnfræðingar líta á fyrri og seinni heimsstyrjöldina sem borgarastríð í Evrópu. Alþjóðlega alfræðiritið er alþjóðlegt rannsóknarverkefni. Slóðin er : www.1914-1918-online.net.
Bloggfærslur 9. janúar 2014
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar