Færsluflokkur: Bloggar
19.11.2013 | 16:55
Pundið bjargar Bretum ekki....
The Telegraph , breska íhaldsblaðið reynir að telja sjálfu sér og öðrum um að breska hagkerfið vaxi hratt og sé afar öflugt. Ef borinn er saman hagvöxtur í Bretlandi, á Evrusvæðinu og í USA eftir 2008 kemur í ljós að nánast enginn munur er á Bretlandi og Evrusvæðinu en að hagvöxtur í USA er talsvert meiri. Það kemur í ljós að Bretar standa sig betur en Spánverjar og Ítalir en verr en Frakkar og Þjóðverjar. Bretar ráða sínum gjaldeyri og gengið er sveigjanlegt til að tryggja samkeppnishæfni en samt sem áður er hagvöxturinn ekki nema meðaltal evrusvæðisins. Svíar standa sig t.d. mun betur en Bretar. Ýmsir hagfræðingar,t.d. Paul Krugman, skrifa nú um að hagkerfin séu í stöðugri,langvarandi lægð. Kreppan orsakast (m.a.) af því að fjárfestingar eru í mikilli lægð. Vaxtastigið liggur fyrir ofan hagnaðarhlutfallið. Fyrirtækin sitja uppi með mikið magn af peningum og þurfa ekki og vilja ekki taka lán. Þau liggja á peningum af því að hagnaðarhlutfallið hefur fallið. Í upphafi áttunda áratugarins lauk löngu hagvaxtarskeiði sem hófst þegar seinni heimsstyrjöld lauk. Eftir það hefur batinn eftir hverja kreppu orðið veikari. OECD spáir 1.4% hagvexti fyrir Bretland í ár og 2.4% á næsta ári.
19.11.2013 | 14:51
Þróun landshluta 2007-2011.
Byggðastofnun gaf nýlega út skýrslu um hagvöxt eftir landshlutum. Það gefur auga leið að atvinnuhættir eru mismunandi frá einu svæði til annars. Það sem einkennir Ísland er óvenjulega mikil samþjöppun byggðar á höfuðborgarsvæðinu. Hún er mun meiri en í öllum nálægum löndum. Á ofangreindu tímabili dróst framleiðsla saman á höfuðborgarsvæðinu, Austurlandi og Suðurnesjum. Á höfuðborgarsvæðinu dróst fjármálastarfsemi og byggingarstarfsemi saman. Á Austurlandi var mikill hagvöxtur 2005 til 2007 en eftir það samdráttur. Í samgöngum skiptir tvennt einkum máli. Landeyjarhöfn var lokið 2010 og Héðinsfjarðargöng voru opnuð árið eftir. 75% vinnuaflsins vinnur í þjónustugreinum á höfuðborgarsvæðinu en í öðrum landshlutum er hlutfallið tæpur helmingur. Á Suðurlandi og Norðurlandi Vestra er landbúnaður mikilvæg atvinnugrein en ekki í öðrum. Sjávarútvegurinn færðist nær höfuðborgarsvæðinu á þessu tímabili. Útflutninghafnir og aðgengi að flugi skipta líklega máli. Mest framleiðsla á mann er á Vesturlandi og Austurlandi en minnst á Suðurnesjum og Norðurlandi eystra. Atvinnugreinaskipting á höfuðborgarsvæði og landsbyggð er ólík. Á landsbyggðinni skipta sjávarútvegur, stóriðja og landbúnaður mestu. Suðurnes er sambland af landsbyggð og höfuðborgarsvæði. Menntunarstig fólks á vinnumarkaði er minna en annar staðar. Á Vesturlandi er sjávarútvegur og stóriðja langmikilvægustu greinarnar. Hvergi er sjávarútvegur jafn mikilvæg grein og á Vestfjörðum. Ásamt Vestfjörðum er Norðurland Vestra sá landshluti sem leggur minnst til landsframleiðslu. Á Norðurlandi Eystra er þjónusta 62% framleiðslunnar og Akureyri er helsti vaxtarkjarni landsins utan Reykjavíkur. Á Austurlandi líkt og Vesturlandi er stóriðja og sjávarútvegur meginstoðir atvinnulífsins. Suðurlandi má skipta í þrennt,þ.e. Árborgarsvæðið, landbúnaðarhéruðin og Vestmannaeyjar. Frá 2008 hefur fólki fjölgað í Eyjum.
19.11.2013 | 09:16
ESB og Kína stefna að tvíhliða fjárfestingarsamningi.
Í lok þessa mánaðar munu fulltrúar ESB og Kína hittast í Peking til viðræðna um samstarf á sviði efnahagsmáli. Síðasti fundur var í Brussel 24. okt síðastliðinn.Kína og ESB eiga sameiginlega langtímahagsmuni segir talsmaður í Peking. Samningur myndi auka fjárfestingar beggja og skapa meira jafnvægi í viðskiptum.Kína hefur áhuga á umfangsmiklum samningi. Kínverski forsætisráðherrann mun hitta fulltrúa ESB og ræða við þá um meginþætti samstarfs næstu fimm til tíu ára. Kínverjar hafa áhuga á tæknifyrirtækjum og þekktum vörumerkjum. ESB er stærsti viðskiptaaðili Kína og fyrstu 10 mánuði þessa árs jukust viðskiptin um 0.5% miðað við árið áður. Á sama tíma jukust fjárfestingar ESB í Kína um 23% en fjárfestingar Kína í ESB tvöfölduðust. (CCTV).
19.11.2013 | 06:54
Framsókn í ruslflokk.
Á opnum nefndarfundi sagði Már Guðmundsson bankastjóri Seðlabanka Íslands að hann hefði ekki heyrt að fjármagna ætti skuldaleiðréttingar á efnahagsreikningi bankans enda væri það á vissan hátt ígildi peningaprentunar. Aðalhagfræðingur bankans benti á að slík aðgerð væri ekki möguleg miðað við gildandi lög. Yrði lögunum breytt og þessi leið farin myndi lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands fara í ruslflokk. Seðlabankastjóri bætti við fullyrt hefði verið við sig að þessi leið yrði ekki farin. Um fundinn urðu nokkrar umræður á Alþingi. Fjármálaráðherra var varkár í orðavali og sagði að öllu máli skipti að halda lánshæfismati ríkisins stöðugu. Hefst nú þáttur forsætisráðherra. Hann hóf talið á Icesave-málinu og minnti á það starfsmenn bankans væru ekki embættismenn og hagfræðingar heldur væru þeir í pólitík. Nokkrir starfsmenn hefði beitt sér mjög í Icesave-málinu og talið erlenda skuldasöfnun af hinu góða. En þessir menn gátu ekki stöðvað Framsókn í Icesave-málinu og munu ekki heldur gera það í þetta skipti. Lýkur hér þætti forsætisráðherra. -Bloomberg fréttaveitan hefur greint frá því að forsætisráðherra Íslands hafi ásakað bankastjóra Seðlabanka Íslands um að vera í pólitík. (Heimurinn fylgist agndofa með ;).
18.11.2013 | 20:19
19.11. 2013 er alþjóðlegur dagur klósettsins.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ákvað að þriðjudagurinn 19. nóvember 2013 yrði alþjóðlegur dagur klósettsins. Tveir og hálfur milljarður manna hafa ekki aðgang að hreinu og öruggu klósetti. Meirihluti þessa fólks býr í Afríku sunnan Sahara og í Asíu. Einfalt klósett myndi þýða skref í átt að heilbrigðara lífi,meira frelsi og meira jafnræði milli karla og kvenna. Það myndi bæta stöðu kvenna mikið. Sjúkdómar orsakast af slæmu hreinlæti og þeir hafa áhrif líf og lífskjör fólks sérstaklega barna. Það er beint samband á milli skorts á hreinlæti og fátæktar. Bætt hreinlæti var hluti af hraðri þróun þjóðfélaga í Evrópu og Ameríku til nútíma þjóðfelags. Hreinlætið hélst í hendur við bætta heilsu og auknar lífslíkur. Að hafa aðgang að hreinu vatni og búa við hreinlæti er hluti af mannréttindum.(worldtoiletday.org)
18.11.2013 | 17:20
Sósíalismi í Seattle og milljarðamæringurinn Steve Forbes.
Kashama Sawant er bandarísk kona af indverskum ættum. Hún er tölvunarfræðingur og hagfræðingur. Hún var nýlega kosin í borgarstjórn Seattle borgar. Hún er mjög vinstri sinnuð og hefur verið virk í aðgerðum á vinstri væng. Kosning hennar fór fyrir brjóstið á Steve Forbes en hann studdi Mitt Romney með miklum fjárframlögum en hafði ekki árangur sem skyldi. Í Forbes tímaritinu er nú skyndilega gerð árás á Sawant. Hagfræði eru ekki raunveruleg vísindi stendur þar heldur hindurvitni eða töfraþulur galdramanns. Eitt má þó hagfræðin eiga. Hún bendir á augljósa staðreynd ; það er óbreytanlegt mannlegt að hver hugsi um eigin hag eða eigingirni er mönnum í blóð borin. En þetta hafa vinstrisinnar eins og Sawant aldrei skilið. En hvað kennir reynslan okkur? Ræður eigingirnin alltaf? Þegar fólk leggur líf sitt í hættu fyrir annað fólk eða fórnar lífi sínu fyrir aðra? Þegar fólk vinnur launalaust hjálparstarf? Hinn eigingjarni einstaklingur á frjálsum markaði er sögulega nýtt fyrirbæri. Er eðli hans yfirsögulegt og sammannlegt? það væri undarleg rökleysa að halda því fram. Ayn Rand hefur haft mikil áhrif með heimspeki sinni um græðgi og sjálfselsku mannsins. Teboðið hefur orðið fyrir áhrifum af heimspeki hennar og einnig Alan Greenspan sem segir að ekkert geti komið í staðinn fyrir markað aftengdan reglum. Það munu koma bólur og kreppur en hjá því verður ekki komist segir bankastjórinn fyrrverandi. En hvernig hefur Greenspan og félögum hans gengið að spá. WSJ gerð athugun á spádómum bankamanna, m.a. Ben Bernacke. Hlutfall réttra spádóma hjá honum var 29%. Og af hverju skapaði Guð hagfræðinga? Það var greiði við veðurfræðinga;)
18.11.2013 | 14:51
Fíkniefnahneyksli í breskum banka.
Breskir bankar leggja rækt við dapurlega ímynd sína. Á myndbandsupptöku sést fyrrum yfirmaður eftirlits í The Cooperative Bank vera að kaupa dóp. Það var einmitt þessi banki sem var talinn öðrum fremri í siðferði. Hneykslismálin hafa verið fjölbreytt og mörg í breskum bönkum á undanförnum árum. Milljarðar punda hafa tapast vegna áhættuviðskipta og ríkissjóður hefur neyðst til að hlaupa undir bagga. Bankar hafa verið rannsakaðir vegna markaðsmisnotkunar og mikil mannaskipti hafa verið í æðstu stöðum. Mail on Sunday, sem ku vera áreiðanlegt blað, birti fréttir af fíkniefnakaupunum með myndum og vísun í myndbandsupptöku. Þar sést Paul Flowers með þrjú hundruð pund í seðlum að tala við mann sem er líklega að selja efni s.s kókaín. Auk þess birti blaðið sms skilaboð þar sem sami maður ræðir fíkniefnakaup og neyslu. Flowers er 63 ára gamall og prestur í Meþódistakirkju. Erfiðleikar bankans hafa haft áhrif á móðurfélagið Co-operative Group Ldt. Flowers hefur verið prestur í 40 ár en vegna dauðsfalls í fjölskyldunni og annarra erfiðleika leitaði hann náðir deyfandi áhrifa fíkniefna. 1.6 milljarða punda kostaði það að bjarga bankanum sem upphaflega hafði það að markmiði að bæta samfélagið. Glannaleg lán í fasteignaviðskiptum og útrásar/útþenslu órar komu bankanum á kaldan klaka. Bandarískur vogunarsjóður á nú stóran hlut í stofnun sem einu sinni var samvinnubanki. Á breskum fjármálamarkaði er fákeppni og stórir bankar ráða ríkjum; Lloyds Banking Group, The Royal Bank of Schotland Group, Barclays og HSBC Holding. Stjórnvöld hafa því reynt að efla smærri banka til að auka samkeppni. Hingað til hafa stjórnmálamenn viljað styðja við samvinnubankann en kannski verður það ekki mikið lengur.
18.11.2013 | 10:01
England; vannæring á krepputímum.
Fjöldi tilvika skráðum á enskum sjúkrahúsum hefur tvöfaldast á fimm árum. Kreppan kemu harðast niður á þeim sem fátækastir eru bæði einstaklingum og fjölskyldum. Norman Lamb , ráðherra heilbrigðismála segir að skráð vannærinartilvik á sjúkrahúsum hafi verið 3661 árið 2008 en 5499 árið 2012. Verð á matvælum og almennum framfærslukostnaði hefur hækkað mjög mikið eftir matargjafir hjálparsamtaka hafa stóraukist. Í dreifbýli virðist ástandið vera alvarlegast. Sjúkrahús í Somerset greindu 215 tilvik um vannæringu. Nú eru tilvik ekki sama og persónur þannig að persónur eru líklega færri. Orkuverð hefur hækkað og skattar hafa hækkað. Allt verður til að rýra kjör fólks.Aðrir sjúkdómar hafa gert vart við sig , m.a. þeir sem stafa af vítamínsskorti. Hjálparstofnanir hafa árum saman varað við því að þetta ástand gæti skapast. Það er fátækt eldra fólk sem verst er statt. Samkvæmt Oxfam fengu 26000 manns matargjafir árið 2008 og 2013 eru það fleiri en 350000. Fólk leitar til hjálparstofnana eftir að hafa verið matarlaust í marga daga.
17.11.2013 | 20:42
Stjórnmálin á tímum Twitter og Facebook.
Kosningar verða á Englandi 2015. M Dugher er þingmaður breska Verkamannaflokksins. Hann á að stýra kosningabaráttunni fyrir flokk sinn,þ.e. þeim hluta sem snýr að fjölmiðlum. Almenningur er leiður á stjórnmálum og þess vegna skiptir öllu hvernig við kynnum áherslur okkar fyrir kjósendum. Hann vill taka bandaríska Demókrata til fyrirmyndir og hvernig þeir unnu sigur í kosningum 2008 þegar Obama varð forseti. Á tímum netsins skipta peningar ekki eins miklu máli og áður. Þar með hefur Íhaldsflokkurinn tapað helsta óaðili sínu. Félagar í Verkamannaflokknum eru 193000 en í Íhaldsflokknum eru þeir 134000 og fer fækkandi. Yfirburðir Verkamannaflokksins hafa alltaf falist í miklum fjölda virkra félaga. Ný heimasíða Verkamannaflokksins hefur þegar hlotið lof frá mönnum sem störfuðu með Obama 2008. Með því að nýta sér Twitter og Facebook hafa nálægt eitt þúsundir flokksmanna dreift upplýsingum í milljónatali um vefinn. Hefðbundnir yfirburðir Íhaldsflokksins hafa einnig falist í prentmiðlum. Vægi slíkra miðla fer hins vegar hratt minnkandi. Tækni er eitt en pólitískar röksemdir og sannfærandi málflutningur er það sem skiptir máli. (The Independent).
17.11.2013 | 16:10
Kína : tvö börn möguleg en með skilyrðum.
Í 30 ár hefur gilt ströng regla; hjón mega aðeins eiga eitt barn. Nú hefur þessu verið breytt. Hjón geta eignast tvö börn ef annað foreldrið er einkabarn. Nefnd sem sér um lýðheilsu og fjölskylduáætlanir hefur tilkynnt að staðbundin yfirvöld muni ákveða hvenær og með hvaða hætti þessari ákvörðun verði framfylgt. Taka verður tillit til aðstæðna á hverju svæði fyrir sig. Guandong í Suður Kína verður líklega fyrsta héraðið til að framkvæma hin nýju lög. Nefndin telur ótta við of mikinn fjölda fæðinga vera ástæðulausan. Það er búist við því að heildarfjöldi Kínverja verði töluvert fyrir neðan 1.43 milljarður árið 2020. Búist er við að fæðingum fjölgi mikið í stuttan tíma en að fjöldi fæðinga verði 13.79 milljónir sem er svipað og árið 2000. Kannanir benda til þess að 10 milljón eigi rétt á að eignast sitt annað barn en um 60% hafi áhuga á því. Þessi hjón þurfa að senda inn umsókn. Ef þau koma ekki frá sama héraði nægir að senda inn umsókn til annars héraðsins. Nefndin varar við að refsing liggur viða að brjóta lög og reglur. (cctv.com)
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar