Færsluflokkur: Bloggar

Masters og Johnson.

Þau voru bandarískir vísindamenn sem urðu þekkt fyrir rannsóknir á kynlífi manna. William var læknir og Virgenia sálfræðingur. Saman stjórnuðu þau rannsóknarstofnun á árunum 1973 til 1994. William hóf rannsóknir sínar 1954 á sjúkrahúsi sem hann vann við. Árið 1966 gáfu þau út bókina Human sexual response. Þetta var brautryðjendaverk og fyrsta alhliða lífeðlisfræðilega rannsóknin á kynlífi mannsins eins og það birtist við rannsóknaraðstæður. Mikið af ransóknarniðurstöðum var byggt á athugunum. Kynörvun þeirra sem tóku þátt í rannsóknum var mæld og greind með margvíslegum mælitækjum.Bókin komst á metsölulista  þrátt fyrir að hún að hún væri ritu á mjög þurru og tæknilegu fræðimáli. Hún var þýdd í fjölda landa og hafði mikil áhrif á viðhorf fólks. Masters og Johnson meðhöndluðu fólk við margvíslegum vandamálum tengdum kynlífi. Samhliða þessu höfðu þau hjónaráðgjöf. 1979 skrifuðu þau bók um rannsóknir sínar á samkynhneigð. Masters var þeirrar skoðunar að hægt væri að lækna samkynhneigð og taldi hann aðferðir sínar bera nokkurn árangur. Þessar rannsóknir og kenningar hafa verið mjög umdeildar. 1988 skrifaði hann bók um kynlíf á tímum eyðni. Hugmyndir Masters um kynsvörun hafa reynst langlífar.Hann greindi fjögur stig: örvun, hámark, fullnæging og hnig. Masters og Johnson voru fyrst til að rannsaka kynlíf eldra fólks. Þau töldu að kynlífi væri ekki sett aldursmörk ef heilsa væri sæmileg og áhugi fyrir hendi. Fjölmargir hafa orðið til að gagnrýna rit Masters og Johns. Sérstaklega má nefna Shere Hite. Hún er þýskur femínsiti og kynlífsfræðingur.

Sjö kröfur til ESB framtíðarinnar.

Sex forstjórar stórra þýskra fyrirtækja skrifuðu grein í FAZ- Frankfuter Allgemeine Zeitung sem er eitt að stærstu dagblöðum Þýskalands. ESB stendur frammi fyrir gífurlegum áskorunum. Skuldakreppan er tákn um alvarleg mistök í hagstjórn. Fjölmörg fyrirtæki eru í alþjóðlegri samkeppni og til þess að standast hana verður að gera mikilvægar umbætur. Innan ESB búa 7% íbúa jarðar, 25% af heimsframleiðslunni er framleidd í ESB og 50% af útgjöldum til félagsmála eru greidd innan ESB. ESB hefur skapað velmegun, frið og lýðræði í Evrópu. Til þess að svo megi vera áfram þarf að framkvæma eftirfarandi. 1. ESB verður að vera opnari og sveigjanlegri. Ekki er hægt að stýra öllu frá Brussel. Aðildarríki geta ekki gengið öll í takt. 2. Valddreifing og lýðræði verður að einkenna ESB. Þjóðþing eiga að hafa vald til að hafna einstökum reglugerðum. Fullveldið er hjá borgurum aðildarríkjanna. 3. Það verður að stöðva gífurlegt greiðsluflæði í sjóði til styrktar landbúnaði og ákveðinna svæði. Þessir fjármunir skapa lítinn hagvöxt og fá störf. 4. Kostnaður við skrifræði og skriffinnsku í Brussel vex á kostnað smárra og meðalstórra fyrirtækja sem eiga í samkeppni. Veita þarf þessum fyrirtækjum svigrúm til að koma fram með nýjungar og nýsköpun. 5. Gera þarf fyrirtækjum auðveldara að komast inná markaðinn. Fríverslunarsamningur við USA býður uppá mikla möguleika. 6. Vinnuaflið á sameiginlegum markaði þarf að verða hreyfanlegra. Atvinnuleysi í Suður Evrópu en skortur á vinnuafli á sumum svæðum í Norður Evrópu. 7. Fjármála-og peningastjórnun aðildarríkjanna verður að byggja á sama grunni. Fyrirtæki innan ESB verða að vera samkeppnishæf á á alþjóðlegum mörkuðum. ---Svo mörg voru þau orð.  

N Chomsky: af hverju vill ekkert ríki líkjast USA?

Nýlega ritaði kínverskur fréttaskýrandi að USA gæti ekki verið ábyrgur aðili í alþjóðlegum samskiptum. Þau væru að glata trúverðugleika og önnur ríki myndu fjarlægja sig frá þeim til að losna undan margvíslegum áhrifum. USA er gjarnan lýst sem eins flokks ríki. Stjórnmálaflokkurinn heitir : Flokkur stórfyrirtækja. Hann er tvískiptur í demókrata og republikana. Þetta hefur breyst og nú er flokkurinn ekki tvískiptur. Í honum eru nú eingöngu hófsamir repúblikanar sem kalla sjálfa sig Nýja demókrata. Það eru til samtök sem kenna sig við Republikana en þeir hafa löngu hætt að vera lýðræðislegur og þingræðislegur flokkur. Flokkurinn er læstur inni í þjónkun og þjónustu við hina ofurríku og auðhringina. Þar er fá atkvæði að fá en þá hefur Teboðið virkjað þann hluta kjósendahópsins sem er öfgafullur á alla venjulega mælikvarða. Þetta pólitíska afl er hægt að nota til að einkavæða, til að takmarka vald hins opinbera og til þess að losa markaðinn undan íþyngjandi rerglum. Sumir hlutar hins opinbera koma að góðu gagni af því að þeir verja auð og forréttindi. Lögregla og her eru dæmi um þetta. Margir stjórnmálaskýrendur hafa líkt risaveldinu USA við þorpara eða rudda sem sé ógn við heimsfriðinn. Washington fjarlægist heiminn með því að hafna sífellt fleiri alþjóðlegum samningum og samþykktum. Sérsveitir bandaríska flotans hafa ráðist inní önnur ríki , tekið menn af lífi eða fært þá burtu til yfirheyrslu. Hvers konar ríki leyfir sér þetta og kemst upp með þetta? Hvaða ríki leyfir sér það að ráðast hvað eftir annað með drónum á önnur ríki? Gilda ekki alþjóðalög? USA hagar sér þannig eins og lögmæti aðgerða ráðist af þeirra eigin yfirlýsingum.

Stóra Bretland eða Litla England?

Vatnaskil urðu eftir stríðið þegar borgir landsins voru rústir einar. Ríkisstjórn verkamannaflokksins stofnaði NHS-national health service, kom á ókeypis framhaldsskóla, innleiddi atvinnuleysisbætur ,veikindabætur og setti fé í félagslegt húsnæði. Þeir sem mótuðu breska velferðarkerfið voru alveg vissir um hvað þeir voru að gera. Örlög fólks eiga ekki að ráðast af blindum markaðsöflum. Við ætlum að skapa öllum mannsæmandi lífskjör. Og ríkið byrjaði að vaxa. það óx einnig á valdatíma M Thatcher. Frá 1948 til 2009 jukust útgjöld til menntamála, heilbrigðismála og velferðarmála um 4.5% á ári í rauntölum(á föstu verðlagi). Heilbrigðiskerfið er eitt af því sem Bretar eru stoltir af. Allir minnast opnunarsýningar Olympíuleikanna í London og hvernig NHS var sýnt þar. En fjármálakreppan hefur leitt til þess sem var óhugsandi. Raunframlög til heilsugæslu og menntamála hafa minnkað. Allt það sem Tony Blair og Gordon Brown bættu við hefur verið tekið aftur. Niðurskurður er á öllum sviðum en hann er misjafn. Lítið er skorið niður hjá eldri borgurum. Þeir eru stór kjósendahópur og kosningaþátttaka er mikil. Hjá lögreglu er skorið mikið niður en glæpum hefur jafnframt fækkað(sic). Framundan eru tímamót. Bretar munu takast á um aðild að ESB. Ætla þeir að vera Hong Kong efnahagssvæði með kjarnorkuvopnum? Ætla þeir að takmarka fjölda innflytjenda? Ætla þeir að vera opnir fyrir breyttu ESB?

Scarlett Johansson og klámið.

Leikkonan vakti athygli nýlega þegar hún sagði í viðtali við þekkt tímarit að hægt sé að njóta kláms eins og alls annars. Það gæti verið gott bæði fyrir bæði karla og konur en yrði að vera í hófi. Um þetta hafa menn deilt lengi. Árið 2011 birtist grein í tímaritinu Scientific America eftir M W Moyer. Þar kemur fram að nauðgunartíðni og tíðni kynferðisáreitni hafi ekki verið lægri síðan á sjöunda áratugnum í USA. Í Japan, Kína og Danmörku má greina sömu þróun. Í USA er greinilegt samband milli aðgengis að klámi á netinu og tíðni nauðgana. Eftir því sem aðgengið er meira er tíðnin lægri. Nú er um fylgni að ræða en ekki orsakasamband. Nákvæmlega hverjar orsakir eru getum við ekki fullyrt. Sú tilgáta að klám hvetji til nauðgana virðist við fyrstu sýn ekki sennileg. Gæti það verið að klámið minnkaði löngun til að nauðga? Rannóknir á sjöunda og áttunda áratugnum virtust benda til þess að dæmdir nauðgarar hefðu byrjað seinna að horfa á klám en aðrir hópar. 1992 ritaði breskur geðlæknir R Greeen bók um reynslu sína af meðferð dæmdra nauðgara. Hann hélt því fram að klám virtist styðja það að nauðgunarfantasíur yrðu það en ekki annað.(M W Moyer : The sunny side of smut)

A Greenspan: aðeins pólitísk eining getur bjargað evrunni.

Greenspan er þeirrar skoðunar að félagskerfi ríkja ESB verði að líkjast meir hvert öðru. Annars muni evrusvæðið ekki eiga sér framtíð. Hann álítur aðra fjármálakreppu vera mögulega. Gott og blessað: þessar skoðanir eru hvorki frumlegar né nýjar en hvað sem því líður hefur þýska blaðið Welt langt viðtal við bankastjórann sem fyrrum hafði mikil völd. Greenspan er að skrifa nýja bók. Hann vill skýra fjármálakreppuna með óskynsamlegri(irrational)hegðun manna sem eiga viðskipti á fjármálamörkuðum.En hefur mannsmynd hagfræðinnar beðið hnekki? Hvað um hinn hagræna mann? Í meginatriðum er maðurinn skynsamur og hagrænn segir Greenspan. Upplýsingin , eignarrétturinn og tilkoma kapitalismans hafa leitt til gífurlegra framfara og skapað auðlegð nútímans. Líkön Seðlabanka USA gátu ekki sagt fyrir um fjármálakreppuna , viðurkennir Greenspan. Það brást. Við gerðum ekki ráð fyrir óskynsamlegu hagrænu atferli manna. Annars eru hagfræðingar ekki spámenn í biblíulegum skilningi segir Greenspan. Það er hins vegar nauðsynlegt að koma í veg fyrir með lögum að bankarnir taki of mikla áhættu. Í dag verður að skylda bankana til að eiga amk 20% eigið fé. Evrusvæðið verður að vera politisk eining(samband,politische Union) annað hvort öll ríkin eða kjarnaríkin. Sameiginlegt efnahags- og myntsvæði getur ekki haft mismunandi félagskerfi(velferðarkerfi). Þýski seðlabankinn (Bundesbank) hefur lánað seðlabönkum annarra ríkja 570 milljarða evra. Peningakerfið er ekki í jafnvægi. Nú ert þú orðinn 87 ára gamall ,segir blaðamaðurinn. Mér finnst ég vera mjög ungur segir Greenspan; alls ekki eldri en 85 ára..(Die Welt)

Putin og Snowden. Njósnari og njósnari.

Báðir eru þeir hrifnir af bardagaíþróttum. Annar stundar júdó en hinn kung fu. 23 ára gamlir byrjuðu þeir að vinna fyrir leyniþjónustu lands síns. Annar er forseti en hinn er uppljóstrari og hetja á tímum rafrænna upplýsinga. Gamall KGB njósnari getur metið aðstæður rétt. Uppljóstrarinn er afar mikilvægur og hann þarf ekki að óttast langan arm CIA. USA á í vök að verjast. Þeir geta engan veginn komið fram sem forystuland háleitra gilda eins og lýðræðis og mannréttinda. Snowden veldur nokkrum erfiðleikum í samskiptum Rússlands og USA. Hann er eins og heit kartafla. Það er alveg ljóst hvað Putin hefði viljað gera ef rússneskur njósnari hefði leikið svipaðan leik. Enginn samningur er um framsal njósnara milli Rússlands og USA. USA hafa beitt mikilli hörku. Þeir neyddu flugvél Evo Morales til að lenda sem var mikil niðurlæging. Putin skilur Snowden alls ekki. Putin er alinn upp í fátækt í Leningrad en í störfum sínum fyrir leyniþjónustuna komast hann til æðstu metorða. Putin var m.a. yfirmaður rússnesku leyniþjónustunnar í Austur-Þýskalandi og talar þýsku reiprennandi. Hann skilur ekki hugsjónamenn eins og Snowden sem eyðileggja glæstan starfsferil. Snowden er það ljóst að rússneska leyniþjónustan FSB reynir að nota upplýsingar hans og notfæra sér hann. Snowden kemur á hentugum tíma fyrir Putin. Vinsældir hans hafa dalað vegna margra mála. Réttarhöldin yfir Pussy Riot, valdbeiting gegn samkynhneigðum og einnig umhverfissinnum.

Gjafapakkar til ríka fólksins í Noregi.

Ríkisstjórn Ernu Solberg ætlar að lækka eignaskatt og afnema erfðafjárskatt. Hundrað ríkustu menn Noregs fá 87 milljónir í skattaaslátt. Hægri flokkurinn og Framfaraflokkurinn gefa vinum sínum gjafir. Cancia fyrirtækið studdi flokkana með 1.5 milljón króna framlagi í kosningabaráttunni. Þessi fjárfesting ætlar að skila arði. Eftir breytingar á sköttum mun fyrirtækið greiða 1.26 milljón krónur minna í skatta. Skattar munu lækka um 3.57 milljarða og það kemur tekjuháum og auðugun hópum einkum til góða. Auk þess ætlar ríkisstjórnin að lækka almenna tekjuskattinn um 1% og munu skatttekjur lækka um 10.54 milljarða. Það er verið að dreifa þjóðartekjum á nýjan hátt með nýjum áherslum. Hjá NHO-samtökum atvinnurekenda eru menn í sjöunda himni. Þetta er í samræmi við það sem atvinnulífið(sic) hefur lengi beðið um. þar á bæ sjá menn fram á auknar fjárfestingar sem munu skapa hagvöxt og fleiri störf(sic). Aukin eignaraðild Norðmanna að fyrirtækjum sem eru með rekstur í Noregi mun einnig koma. 

Heineken í Kongó: blóð og bjór.

Hermennirnir nauðga, pynta og drepa- og fá sér svo bjór á kvöldin. Í Kongó hefur fyrirtækið borgað skatta og skyldur til stríðandi aðila í borgarastríðinu og getur þess vegna haldið áfram að selja bjórinn.Í borgarastyrjöldinni gildir ein regla: þú getur sprengt sjúkrahús í loft upp en ekki Bralima. Bralima er samheiti fyrir bjór og brugghúsið er í eigu risafyrirtækisins í Amsterdam. Á hræðilegustu augnablikum borgarastyrjaldarinnar var alltaf hægt að nálgast bjór. Í Kivu héraði voru tugþúsundir manna á flótta, morð, nauðganir og pyntingar voru daglegt brauð. Í þessum hryllingi var einn fasti : bjórinn. Markaðurinn er risastór. Salan á bjór á mánuði er tvær milljónir dollara. Auk annarra drykkja. Uppreisnarmenn RCD-Goma ráða Kivu héraði. Skattur þeirra er fimm og hálfur dollari á bjórkassa. Heineken borgar einnig vegtolla sem komið hefu verið upp víðsvegar. Skatt-og tolltekjur eru notaðar til að kaupa vopn. Hvað annað? Heineken hefur verið mörg ár í Kongo. Nú eru 6 bruggverksmiðjur í landinu. Starfsmenn eru 3300. Afleidd störf eru margfalt fleiri. En þessi saga snertir ekki eingöngu Heineken. Hún snertir fjölmörg alþjóðleg fyrirtæki sem halda starfsemi sinni áfram í stríðshrjáðum löndum og án þess að velta siðferði viðskipta fyrir sér á nokkurn hátt. (Spiegel)

Eru nýfasískir flokkar á Íslandi?

Söguskeið fasisma(nasisma) var á milli heimsstyrjaldanna. Þá urðu til fasískar hreyfingar í nánast öllum löndum Evrópu. Endalok fasismans var ósigur fasískra ríkja í seinni heimsstyrjöldinni. Eftir stríðið hafa nýfasískir flokkar orðið til í allmörgum löndum. Nysvenska Roreelsen hefur starfað óslitið frá því fyrir stríð. MSI var stofnað á Ítalíu 1946. Hugmyndafræðingar nýfasismans eru meðal annara Per Engdahl, O E Mosley og M Bardeche. Þýska tímaritið Nation Europa hefur verið mikilvægt hugmyndafræðilegt málgagn. Mikilvægt einkenni þessara flokka er að vera á móti innflytjendum frá íslömskum löndum. Eftirfarandi flokka má nefna: Vlaam Belang, Front National, Vallonia, British National Party og NPD. Flokkarnir eru ákaflega ólíkir og misharðir í andstöðu sinni. Sumir þessara flokka hafa farið út í hryðjuverkastarfsemi. Einstaklingar hafa einnig framið hryðjuverk. Hryðjuverkin hafa beinst gegn íslamskri trú eða fulltrúum fjölmenningarsamfélagsins. Það er alveg ljóst að enginn nýfasískur flokkur er til á Íslandi. Auðvitað eru til einstaklingar sem aðhyllast nýfasísk viðhorf en þeir eru áhrifalitlir. Þjóðerniskenndin er gífurlega öflug hugmyndafræði. Hún höfðar beint til tilfinninga fólks og þess sem mótar sjálfsmynd þess mikið. Þjóðernisrembingur er skrumskæling þjóðerniskenndar og um leið falskt yfirvarp. 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband