Færsluflokkur: Bloggar

Stórsigur A Merkel og ný stjórnarmyndun.

Úrslit kosninganna í Þýskalandi liggja nú fyrir. Hægri flokkarnir-CDU/CSU bæta við sig miklu fylgi. Í kosningum 2009 fengu þeir 33.8% en fengu nú 41.5%. Fyrir fjórum árum fengu jafnaðarmenn 23% en nú 25.7%. Frjálsir demókratar fengu 14.6% í kosningum 2009 en 4.8% og falla þarmeð af sambandsþinginu. Die Linke fengu nú 8.6% en fengu 11.9% fyrir fjórum árum. Græningjar fengu 10.7% fyrir 4 árum en nú 8.4%. Loks fengu evruandstæðingar 4.7% sem sýnir að þeir sem vilja taka markið aftur upp eiga sér nokkurn hjómgrunn. Á Sambandsþinginu eru 630 þingsæti og hægri flokkarnir fengu 311. Þeir eru ekki langt frá því að fá meirihluta en það hefði orðið naumur og ótryggur meirihluti. jafnaðarmenn fengu 192 þingsæti, Græningjar 63 og Die Linke fékk 64. Stærðfræðin gefur ýmsa möguleika á meirihluta en sumir eru pólitískt sennilegri en aðrir. Líklegast er að hægriflokkarnir og jafnaðarmenn myndi stjórn. Í báðum flokkum er allnokkur andstaða við slíkt samstarf. Annar möguleiki sem kemur til greina eru hægri flokkar og græningjar. Árin 2005 til 2009 var samsteypustjórn hægri flokka og jafnaðarmanna. Að loknu því samstarfi töpuðu jafnaðarmenn miklu fylgi. Sporin hræða. Sumir hægrimenn óttast hugsanlegt samstarf. Þeir álíta Sigmar Gabriel formann SPD vera mjög taktískan mann sem myndi sprengja samstarfið til að mynda nýja stjórn með Græningjum og Vinstri flokknum. En núna hefur A Merkel öll spil á hendi. Hún hefur unnið glæstan sigur og er Landsmóðir í augum meirihluta Þjóðverja.

Stjórnarskipti í Þýskalandi.

Allt bendir til þess að ríkisstjórn A Merkel missi meirahluta sinn í kosningunum. Samkvæmt útgönguspám stóru sjónvarpsstöðvanna ARD og ZDF  munu hægri flokkarnir fá 42% atkvæða en Frjálsir demókratar 4.5%-4.7% atkvæða og falla þar með af þingi. Í kosningunum 2009 fékk flokkurinn rúm 14% þannig að segja má að flokkurinn hrynji saman. SPD,jafnaðarmannaflokki Þýskalands er spáð 26% og bætir hann við fylgi sitt frá síðustu kosningum. Græningjum er spáð 8%, Die Linke er spáð 8.5% og tapa þeir heldur meir en Græningjar frá síðustu kosningum. Pírötum er spáð 2.3% og eru þeir langt frá því að komast á þing. AfD er spáð 4.8%-4.9%. Enn er óvissa af tvennum toga. Tekst annað hvort Frjálsum demókrötum eða AfD( evruandstæðingum) að koma mönnum á þing. Líklegast er þó að A Merkel verði að finna nýjan samstarfsflokk á næstunni. Hún er ótvírætt sigurvegari kosninganna. Nýjustu spár sjónvarpsstöðvanna benda til þess að hægriflokkarnir gætu náð meirihluta á þinginu Bundestag. Samkvæmt spá ZDF gætu hægri flokkarnir fengið 304 þingsæti af 606.

Er erfitt að skilja forsendubrestinn?

1. Í miklu verðbólguskoti eins og varð í kjölfar Hrunsins minnkar verðgildi krónunnar og fleiri krónur þarf til að mæla sama raungildi. Raungildi verðtryggðra lána hækkaði því ekki en krónunum fjölgaði hins vegar sem mældu þetta raungildi. Allar stærðir eru breytilegar í hagkerfinu. Raungildi launa eða kaupmáttur hrapaði þótt nafnverð launa eða launatextar breyttust ekki. Fasteignir eru vörur á markaði og raunvirði þeirra lækkaði eftir Hrun eins og öllum er kunnugt. Ein tilraun til að skilgreina forsendubrest er að segja hann misgengi raunvirðis eigna og skulda.  Nú má sýna framá að slíkt misgengi verður á árunum 2005 til 2010. Verð á húsnæði hækkar mjög hratt 2005 til 2008 en fellur hratt 2008 til 2010. Þeir sem kaupa fyrstu eign á fyrra tímabili tapa miklu. Þeir sem keyptu fyrstu eign 2003( þegar verð var lágt) hafa engu tapað þegar borið er saman raungildi lána og raunvirði húsnæðis. Þeir sem keyptu fasteign , t.d. 2000 til 2003 og seldu á árunum 2005 til 2008 hafa hagnast verulega. Hver er niðurstaðan? Í óstöðugu hagkerfi með sveiflukenndum gjaldmiðli sem sjálfur er mikilvæg uppspretta óstöðugleika verður forsendubrestur að reglu. Hann verður misstór en kemur reglulega fyrir. Krónan er ekki jafngóð við alla og hrunið var það ekki heldur. Afar lágt raungengi krónu hyglir sumum en refsar öðrum. Í hruninu hafa margir tapað miklu, aðrir haldið sínu og enn aðrir stórgrætt. Allt eru þetta heimili í landinu og hin margendurtekna setning að gera eitthvað fyrir heimilin í landinu er algerlega innihaldslaus.

2. Samningar við erlenda kröfuhafa sem eiga miklar krónueingnir í landinu er annað og aðskilið mál. Öllum er ljóst að íslenska ríkið og Seðlabankinn geta ekki skipt þessum upphæðum í erlendan gjaldeyri. Nettó gjaldeyrissköpun landsins nægir engan veginn til þess. Reyndar nægir hún engan veginn til að borga skuldir sem er annað mál. Í ljósi aðstæðna í fjármálum ríkisins, t.d stöðu heilbrigðisþjónustunar blasa við mörg brýn verkefni sem nota má fjármuni í sem nást með samningum við erlenda vogunarsjóði.

3. Hægt er að nálgast forsendubrestinn með öðrum hætti. Hann verður þá þegar lánavísitala hækkar umfram launavísitölu.  Ef laun væru verðtryggð með sama hætti og lán yrði ekki forsendubrestur í þessum skilningi. Ef hins vegar launavísitala hækkaði meir en lánavísitala væri um hagstæða breytingu að ræða fyrir lántakendur. Með þessari skilgreiningu kemur í ljós að einstaklingur sem tók lán á árunum 2005 til 2008 þarf að greiða þarf að greiða hærra hlutfall í lánið en ef engar forsendur hefðu breyst. Munurinn er um 11%. 

4. Forsendubrestur er ýmis konar. Með stórum loforðum varðandi leiðréttingu verðtryggðra fasteigna lána vann Framsókn góðan kosningasigur. Með loforðum fylgdu engar útfærslur og ljóst er að skuldug heimili gera miklar og mismunandi vætingar til efnda. Það hefur verið marg bent á það að efnamikil og tekjuhá heimili sem eiga ekki í greiðsluvanda en skulda mikið muni fá stærstan hluta af leiðréttingunni ef leiðréttingin er flöt og án þaks. Það er alveg ljóst að um þá lausn mun aldrei skapast sátt og mér er það til efs að meirihluti sé fyrir slíku rugli  á Alþingi. Útfærslur við leiðréttingu hafa hinsvegar ekki verið kynntar. Það eru ekki eingöngu faasteignalán sem eru verðtryggð og stórir hópar hafa orðið fyrir mikilli kjararýrnun enda þótt þeir skuldu ekki verðtryggð fasteignalán.  Með skynsemisrökum má sýna fram á að Framsókn hafi haft rangan skilning á forsendubresti og unnið konsingasigur , hvað þetta varðar, á fölskum forsendum. (Stuðst við blogg Vilhjálms Þorsteinssonar og Þorbergs Leifssonar.)


Réttur leigjenda og lögmál markaðarins.

Í gær 21.9. voru stofnuð Samtök leigjenda. Það var brýn nauðsyn að stofna samtök og þetta er skref í rétta átt. Fjöldi leigjenda hefur vaxið mjög hratt og fyrir því eru ýmsar ástæður. Stórir árgangar eru að koma út á fasteignamarkaðinn. Fólk veigrar sér við að taka lán. Kaupmáttur er lítill og óvissa um framtíðarhorfur. Fjöldi fólks hefur misst húsnæði sitt og býr nú í leiguhúsnæði. Leiga hefur rokið uppúr öllu valdi og ýmislegt skýrir það. Í ferðaþjónustu ríkir nú gullgrafaraæði og frumkapitalismi. Margir sjá hag sinn í því að leigja erlendum ferðamönnum húsnæði yfir háanna tímann. Herbergi, hluti íbúðar og heilu einbýlishúsin eru leigð út. Ótrúlega háar upphæðir eru nefndar. Ríkisstattstjóri hefur grun(!) um að ekki séu allar leigutekjur gefnar upp til skatts. Eitt er há leiga og annað er mikið óöryggi sem einkennir stöðu margra leigjenda. Uppsagnarfrestur er mismunandi og sumir lenda í því að flytja margoft. Það er alveg ljóst að gera verður miklar réttarbætur á þessu sviði. Leigjendur verða að hafa rétt til langtímasamninga og með nákvæmlega skilgreindum ástæðum uppsagnar fyrir bæði leigusala og leigutaka. Hið opinbera verður að hafa frumkvæði að því að stofnuð verði leigufélög sem eigi og reki atvinnuhúsnæði. Opinber stuðnngur við leigjendur verður að vera sambærilegur við stuðning sem húseigendur fá. Það verður að gera Íbúðalánasjóði kleyft að koma öllum íbúðum í leigu sem fyrirsjáanlega munu ekki seljast. Við þurfum að gera eitthvað fyrir heimilin í landinu endurtaka ónefndir ráðherrar í sífellu. Nú er tækifærið!

Kosningar hafnar í Þýskalandi.

Klukkan 8 að staðartima voru kjörstaðir opnaðir. 61.8 milljón hafa kosningarétt og geta nú nýtt bæði atkvæði sín. Kjörstaðir loka klukkan 18 í kvöld. Samhliða kosningum til Bundestag (sambandsþingsins í Berlin) er kosið til þingsins í Hessen. Allt bendir til að Merkel verði áfram kanslari eftir kosningar en óvíst er hver samstarfsflokkurinn verður. Óvíst er hvort Frjálsir demókratar verða á þingi-Bundestag- eftir kosningarnar. Það er möguleiki að AfD komist á þing en sá flokkur vill að Þýskaland taki upp markið á nýjan leik. Kosningaþátttakan mun hafa mikil áhrif. Í kosningunum 2009 var hún 70.8%. Strax þegar kjörstöðum er lokað birta sjónvarpsstöðvarnar útgönguspár. Reynslan sýnir að þær eru mjög nákvæmar og úrslit nánast ljós. (Með Zweitstimme velja kjósendur lista ákveðins flokks. Með Erststimme hafa kjósendur áhrif á úthlutun uppbótarþingsæta. Sé þetta atkvæði-Erststimme- ógilt hefur það ekki áhrif á hitt atkvæðið-Zweitstimme-.)

Teresa Forcades er róttækasta nunna Evrópu.

Hún er í forystu fyrir samtökum sem heita Proces Constituent. Hún lifir í klaustrinu St Benet en hefur einnig rás á You tube. Samtökin berjast fyrir sjálfstæði Katalóníu og þau vilja þjóðnýta alla banka. Einnig vilja það þjóðnýta orkufyrirtæki og stöðva niðurskurð hjá hinu opinbera. Teresa hefur doktorspróf í guðfræði en hún er einnig læknir. Stuðningsmenn samtakanna eru um 50 þúsund. Teresa ætlar ekki í framboð en hún er að koma hreyfingu af stað. Með hagfræðingnum Arcadi Oliveres hefur hún sett fram stefnu skrá í tíu liðum: ríkisvaldið þjóðnýtir alla banka og setur reglur sem koma í veg fyrir brask á fjármálamörkuðum. Stöðva launalækknair og stytta vinnutíma. Raunverulegt þátttökulýðræði. Mannsæmandi húsnæði fyrir alla. Þjóðnýta helstu samgöngu fyrirtæki. Réttur kvenna til fóstureyðinga. Grænt hagkerfi. Gegn útlendingahatri og-ótta. Lýðræðislegt eftirlit með fjölmiðlum. Úrsögn úr Nató. Þannig er stefnan í stikkorðum. Teresa er opinská. Við fréttamann BBC segist hún hafa orðið þrisvar ástfangin eftir að hún gerðist nunna. En hún er trygg reglunni og klaustrinu. Ef lífið þar verður þung byrði mun hún yfirgefa regluna. (www.procesconstituent.cat)

Páfinn telur peninga rót illskunnar.

Francis páfi sagði í messu í Vatikaninu að peningar væru rót illskunnar í heiminum. Kirkjufeðurnir á þriðju öld sögðu þetta hreint út og æðsti yfirmaður kaþólsku krikjunnar gerir þessi orð að sínum árið 2013. Peningar eru falskt átrúnaðartákn að mati páfans. Ekki er hægt að þjóna bæði Mammon og Guði voru orð Jesus. Dýrkun peninga leiðir af sér öfund, átök og andlegan veikleika. Peningarnir sýkja huga okkar og eitra hugsanir. Allt fer að snúast um peninga. Einnig trúarbrögðin. (romereports.com)

Forsetinn á Norðurslóðum.

Forseti Íslands var nýlega í viðtali hjá Bloomberg fréttastofunni. Tveir fréttamenn spurðu afar kurteislegra spurninga. Flestar tengdust þær Norðurslóðum og afstöðu Íslands(eða Forsetans) til málefna Norðurslóða. Forsetinn lýsti breyttri heimsmynd í kjölfar hlýnunar jarðar. Stór svæði á Norðurslóðum verða nú aðgengileg og nýjar siglingaleiðir opnast. það gjörbreytir siglingum milli heimsála ef Norðurleiðin er opin þrjá til fjóra mánuði á ári. Norðurslóðir eru mjög ríkar að náttúruauðlindum. Forsetinn var spurður um afstöðu hans(?) til Kína. Það er eðlilegt að Kína hafi áheyrnarfulltrúa hjá Norðurskautaráðinu. Það eru mikilvægir efnahagslegir hagsmunir þeirra. Fjarlægð frá svæðinu skiptir ekki máli. Kínverjar hafa áhuga á hafnaraðstöðu(?) á Íslandi sagði forsetinn. Mikilvægt væri einnig að hafa gott samstarf við Rússa. Fréttamaðurinn vildi vita hvaða þjóðum Íslendingar tengdust helst. Fyrst nefndi forsetinn Bandaríkin sem mikilvægt vina-og bandalagsríki, en einnig Norðurlönd, England og Þýskaland. Forsetinn taldi að hagsmunir Noregs, Grænlands og Íslands væru að standa utan ESB. Hann var ekki beðinn um að útskýra það frekar. Að lokum var fjallað um bankahrun, deilur við Bretland, greiðslur til sparifjárreigenda og önnur slík smámál. 

Mugabe og barnaníðingarnir.

Samkvæmt fréttum vill forseti Zimbabwe láta vana barnaníðinga. Barnaníð virðist vera plága í landinu.Fyrri hluta þessa árs var tilkynnt um 1600 nauðganir á börnum til lögreglu. Einhverjir virðast trúa því að þeir læknist af hiv-smiti með því að nauðga barni. Landið hét áður Rhodesia og var undir stjórn lítils hóps hvítra manna. Mugabe náði völdum og flokkur hans Zanu-pf stjórnaði landinu einn. 2008 voru haldnar kosningar. Eftir kosningarnar var flokkurinn ekki einráður. Landinu var sett ný stjórnarskrá og kosið á þessu ári. Efnahagur landsins er nánast í rúst. Atvinnuleysi og fátækt yfirþyrmandi. Náttúra landsins er mikilfengleg. Viktoríufossarnir eru eitt af mestu náttúrundrum jarðarinnar. Fílahjarðir lifa á víðáttumiklum sléttum. Mugabe tók nánast allt land af hvítu landeigendunum. Því fylgdi snarminnkandi framleiðsla, óðaverðbólga og skortur á eldsneyti og matvælum. Í kosningum á þessu vann flokkur Mugabe sigur. Andstæðingar hans töldu kosningarnar farsa.

Hver verða úrslit í þýsku kosningunum?

Á sunnudag verður kosið í Sambandslýðveldinu Þýskalandi. Á kjörskrá eru rúmar 60 milljónir manna. Kosningaþátttaka verður líklega nálægt 70% og "flokkur" þeirra sem mæta ekki á kjörstað er því næst stærsti flokkurinn. Samkvæmt nýjustu könnunum sjónvarpsstöðvarinnar ZDF munu hægri flokkarnir fá 40% atkvæða. Jafnaðarmenn fá 27% og Frjálsir Demókratar 5.5%. Die Linke sem er flokkur vinstra megin við Jafnaðarmenn mun fá 8.5% og Græningjar 9%. AfD sem er flokkur andstæðinga evru mun fá 4%. Skekkjumörk eru í slíkum könnunum. Þau er t.d. 3% hjá hægri flokkunum. Nokkur óvissa er um kosningaþátttöku. Einnig hefur verið nokkur umræða um taktíska kosningu hjá hægri mönnum. Hluti kjósenda kægri flokkanna myndi þá færa sig yfir til Frjálsra demókrata. Í þessu ljósi eru úrslitin óráðin og talsvert spennandi. Afar ólíklegt er að Jafnaðarmenn og Græningjar nái meirihluta en óvíst er einnig hvort Frjálsir demókratar nái inná þing. 66% allra með kosningarétt segjast ákveðnir hvaða flokk þeir ætla að kjósa. Tveir möguleikar eru helst í stöðunni; annars vegar áframhaldandi hægri-miðju stjórn og hins vegar samsteypustjórn hægri flokkanna og jafnaðarmanna.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband